Að jafnaði hefur Ísraelsher drepið eitt barn í árásum á Gaza á hverjum degi síðan tilkynnt var um vopnahlé. Talsmaður Unicef segir þær þjáningar sem lagðar séu á fólk þar vera þær mestu sem sést hafi í heiminum í seinni tíð.
Tilkynnt var um vopnahlé á Gaza í október. Í tvö ár á undan höfðu Ísraelar drepið yfir 70.000 manns á Gaza og verið sakaðir um þjóðarmorð. Þrátt fyrir vopnahlé hefur Ísraelsher ekki hætt árásum.
Herinn hefur drepið yfir 1.000 manns síðan vopnahlé átti að taka gildi, þar af 265 börn. „Það er fáránlegt, þetta er átakanleg tala,“ segir James Elder, talsmaður Unicef. „Yfir tímabil þar sem átti að taka mið af hófsemi og verndun er barn drepið, að jafnaði eitt á dag í meira en átta mánuði.“
Ísraelsher drap tvö börn í árás á íbúðarhús í Gaza-borg í nótt, fjögurra og fjórtán ára stúlkur. Ástvinir kvöddu þær hinstu kveðju í dag.
Elder segir börnin á Gaza ekki hafa verið drepin á vígvelli. „Þau voru drepin á heimilum sínum, í skólanum, í fótbolta og við að veiða fisk.“
Þá hefur Ísraelsher sært um 400 börn síðan vopnahlé átti að taka gildi, mörg mjög alvarlega. Fjöldi barna þyrfti að komast á spítala í útlöndum.
Gaza er enn rústir einar og áfram er skortur á ýmsum nauðsynjum vegna hernáms Ísraela. Læknar hafa lýst yfir þungum áhyggjum af að þurrmjólk fyrir ungabörn sé senn á þrotum. „Umfang þjáninga á Gaza sem troðið er af öðrum upp á Gaza og palestínsk börn er nánast án hliðstæðu á vorum tímum,“ segir Elder.