Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastjóri Laufásborgar, er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í Reykjavík tilkynnti valið við Elliðaárnar í morgun. Að því loknu renndi Jensína eftir fyrsta fiski sumarsins í ánum.
Jensína fer óhefðbundnar leiðir í starfinu og segir samveruna með börnunum gera sig að betri og sterkari manneskju.
„Við erum öll jöfn, það er engin skrifstofa, allt opin rými, við tölum við hvert annað, berum virðingu fyrir hvert öðru og bara elskum fjölskyldurnar sem við erum með í fanginu.“