Volodymyr Zelensky tilkynnti í dag að hann hefði skilað pólskri heiðursorðu, eftir að forseti Póllands, Karol Nawrocki, svipti hann viðurkenningunni.
Zelensky var sæmdur orðunni árið 2023 af þáverandi forseta Póllands, Andrzej Duda.
Í síðasta mánuði endurnefndu Úkraínumenn eina af hersveitum sínum eftir hópi umdeildra bardagamanna í seinni heimsstyrjöldinni. Nafnbreytingin hefur valdið ólgu í Póllandi, en Pólverjar hafa verið einir helstu bandamenn Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi.
Umdeildur uppreisnarhópur
Hersveitin var nefnd eftir úkraínska uppreisnarhernum UPA. Margir Úkraínumenn líta á uppreisnarherinn sem þjóðhetjur, sem börðust fyrir sjálfstæði Úkraínu gegn Rauða her Sovétríkjanna, þýskum nasistum og pólskum yfirvöldum.
Rauðsvartur fáni UPA er gjarnan notaður af úkraínskum hermönnum á fremstu víglínu núorðið.
Pólland hefur aftur á móti sakað UPA um þjóðarmorð á um 100 þúsund Pólverjum á árunum 1943 til 1945 í Volhynia-svæðinu, eða Volyn eins og það heitir í Úkraínu.
Allur ágreiningur kæti Pútín
Í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum segist Zelensky vera opinn fyrir öllum þýðingarmiklum samskiptum við Pólland í framtíðinni til að reyna að forðast mistúlkanir á erfiðum köflum sameiginlegrar fortíðar. Hann sé þakklátur pólsku þjóðinni fyrir stuðning hennar og samstöðu.
Forseti Póllands sagði nafngift hersveitarinnar óskiljanlega og djúpstæð vonbrigði. Fyrir Pólverjum séu UPA umfram allt samtök sem beri ábyrgð á hrottalegum glæpum gegn Pólverjum í seinni heimsstyrjöld. Það skaði ekki einungis sögulegt minni þjóðanna heldur grafi það undan trausti sem hafi verið byggt upp þeirra á milli á undanförnum árum.
Hann ítrekaði þó að ágreiningurinn hefði ekki áhrif á stuðning Póllands við Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi. Forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, sagði allan ágreining á milli landanna tveggja kæta Rússlandsforseta. Hvatti hann Zelensky sem og Nawrocki til að sýna stillingu.