Talsverður erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra undanfarna tvo daga en Bíladagar fara fram á Akureyri um helgina. Tveir eru í fangageymslu lögreglu í tengslum við alvarlegar líkamsárásir.
Heimir Heiðarsson varðstjóri hjá lögreglunni segir skipulag bíladaga hafa verið til mikils sóma en að auknum fólksfjölda fylgi gjarnan meiri erill hjá lögreglu.
Hann segir fjóra hafa gist í fangaklefa aðfaranótt föstudags sökum ölvunarástands. Fimm voru handteknir í nótt, þar af fjórir fyrir líkamsárásir. Alls voru þrjár líkamsárásir í nótt. Tveir eru enn í haldi lögreglu.
„Tvær af þessum líkamsárásum myndu flokkast sem alvarlegar. Í öðru þeirra missti brotaþoli meðvitund og í hinu var um nefbrot að ræða.“
Hann segir lögreglu einnig finna fyrir auknu álagi í umferðinni í tengslum við viðburðinn.
„Við erum náttúrulega með fulla dagskrá í kvöld og þetta varir fram á sunnudaginn og svo á fólk eftir að koma sér heim þannig að við finnum fyrir auknu álagi í umferðinni. En það eru svona minni háttar umferðaróhöpp og við erum líka að taka ökumenn fyrir umferðarlagabrot.“