Hilmar Leifs hvetur Bubba til að kynna sér glæpastarfsemi

Athafnamaðurinn Hilmar Leifsson telur að tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens ætti að kynna sér glæpastarfsemi. Hilmar lætur þessi orð falla í athugasemdakerfi Hannesar Hólmsteins Gunnarssonar á Facebook.
Forsaga málsins er sú að Hannes deildi viðtali Brotkasts við Sigurlín Guðmundsdóttur en í viðtalinu heldur hún því fram að fyrrum eiginmaður hennar, sem hún nefnir ekki á nafn í viðtalsbrotinu, sé meðlimur Hamas og að hún telji að hér á landi sé hópur af meðlimum Hamas-samtakanna.
„Þetta viðtal þurfa allir að sjá. Í þennan pakka ættu allir að kíkja. Þetta er óhugnanlegt, en trúverðugt. Hvernig stendur á því, að hópur Hamas-liða skuli vera hér á Íslandi?“ skrifar Hannes um málið.
„Úúú ég er svo hræddur,“ skrifar Bubbi í kaldhæðnistón við færslu Hannesar.
„Kæri vinur þarna er ég ósammála þér. Að leika einhvern svaka spaða hérna á Facebook. Þetta snýst ekki um hvort ég eða þú séum hræddir. Ég á dætur og þú líka. Bubbi kynntu þér glæpastarfsemina áður en þú ferð að leika þennan,“ skrifar Hilmar til tónlistarmannsins.
„Það eru hættulegri menn á götum Reykjavíkur vinur en þessi maður þú veist það,“ skrifar Bubbi til baka.
Hannes Hólmsteinn bætir svo við að ekki að eiga að gera gys að svona máli.