Vopnahlé Ísraels og Hezbollah stendur ekki undir nafni. Ísraelar hafa gert árásir á suðurhluta Líbanons síðan samið var um vopnahléið í gær.
Ísraelsher hefur drepið 16 manns, hið minnsta, í árásum á Líbanon í dag, samkvæmt líbönskum stjórnvöldum. Stuttu eftir að tilkynnt var um vopnahlé í gær héldu Ísraelar árásum áfram.
Ísraelar hafa lýst því yfir að þeir dragi her sinn ekki frá suðurhluta Líbanons fyrr en Hezbollah-liðar hafi verið afvopnaðir. Að sama skapi hefur Hezbollah sagt að þeir afvopnist ekki fyrr en Ísraelsher hefur haft sig á brott.
Her Líbanons segir í tilkynningu á X að áframhaldandi árásir Ísraela hindri allar tilraunir til að endurheimta stöðugleika í landinu. Yfir ein milljón manna hefur hrakist á flótta vegna árása Ísraela. Það eru um 20 prósent landsmanna.
Til stóð að fulltrúar stjórnvalda Írans og Bandaríkjanna myndu hittast í Bürgenstock í Sviss í gær og undirrita viljayfirlýsingu um vopnahlé. Ekkert varð af þeim fundi vegna árása Ísraela á Líbanon. Þó hefur sést til Jared Kushner, tengdasonar Trumps, á staðnum og fregnir hafa borist af því að Steve Witkoff, erindreki Bandaríkjastjórnar sé væntanlegur þangað.
Fjölmiðillinn Al Jazeera hefur eftir varautanríkisráðherra Írans að stjórnvöld séu reiðubúin til áframhaldandi viðræðna við Bandaríkin gegn því skilyrði að stjórnvöld þar tryggi að Ísraelar standi við það að hætta árásum á Líbanon. Samkvæmt fyrstu grein viljayfirlýsingar um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans eru stríðslok í Líbanon óaðskiljanlegur hluti af samkomulaginu.