Tónlistarhátíðin Bergmál er að hefjast á Þingvöllum. Gert er ráð fyrir að um tuttugu þúsund manns verði saman komnir í þjóðgarðinum í dag til að hlýða á hljómsveitina Kaelo, sem stendur að hátíðinni. Umferð fór rólega af stað í morgun og að sögn lögreglu hefur allt gengið vel fram að þessu.
Fjölskyldudagskrá hófst klukkan ellefu, á Valhallarsvæði sem er opið öllum, en dagskrá á stóra sviðinu hefst klukkan tvö. Kaleo stígur á svið í fyrra skiptið á hátíðinni klukkan hálf þrjú.
Egill Tómasson svæðisstjóri var í óða önn að stýra undirbúningi þegar fréttamaður náði tali af honum í hádeginu. Um þúsund manns eru við störf á hátíðinni, auk nærri 100 lögreglumanna.
„Það er kominn her af fólki að fara í allar stöður, öryggisgæsla og fleira og allir starfsmenn í tæknideildum, matarvagnar, barstaff og annað. Það er mikið „action“ núna, verið að leggja lokahönd á síðustu „díteilin“, þetta lítur mjög vel út,“ segir Egill.
Taka ekki banana og samlokur af fjölskyldufólki
Gagnrýnisraddir hafa verið uppi um að halda svo fjölmennan viðburð í þjóðgarðinum. Þá hefur borið á að fólki finnist reglur of strangar. Ekki má koma með tjaldstóla, regnhlífar eða mat og drykk inn á svæðið.
„Við erum ekki að taka banana og samlokur eða vatn af fjölskyldufólki. Þetta snýst um þetta common sense,“ segir Egill.
Veðurguðirnir eru hliðholli tónleikagestum.
„Það er náttúrulega sól og blíða þannig að fólk þarf ekkert að koma með regnhlífarnar sínar og fólk getur setið í grasinu. Það er dásamleg stemning hérna,“ segir Egill.
Ljósmyndari RÚV fangaði stemninguna þegar tónleikagestir mættu í morgun og skipuleggjendur, starfsfólk og viðbragðsaðilar lögðu lokahönd á undirbúning.