Eigandi fyrirtækisins AB Gámar ehf. varar nú almenning við því sem hann segir vera umfangsmikið netsvindl þar sem nafn fyrirtækisins sé notað án leyfis til að selja gáma sem séu aldrei afhentir.
Atli Bjarnason, eigandi AB Gáma ehf., birti viðvörun á Facebook þar sem hann segir að Facebook síðurnar AB Gámar ehf. og HeklaBox séu ekki á vegum fyrirtækisins.
„Ég er eigandi á AB gáma ehf og er ekki að selja neina gáma. Það er búið að búa til þessar síður í nafni AB gáma ehf.,“ skrifar Atli.
Hann segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hafi fengið hafi margir orðið fyrir fjárhagslegu tjóni.
„Þetta er netsvindl og fullt af fólki búið að tapa á þessu,“ segir hann.

Segir lögreglu hafa verið upplýsta
Samkvæmt Atla hefur hann þegar haft samband við lögreglu og hyggst kæra málið.
Hann segir jafnframt að svikið fari þannig fram að kaupandi leggi greiðslu inn á bankareikning konu hér á landi og að peningarnir glatist í kjölfarið.
Á skjáskotum sem fylgja viðvöruninni má meðal annars sjá Facebook síðurnar AB Gámar ehf. og HeklaBox, auk vefsíðu HeklaBox, þar sem auglýst er sala á gámum um allt land.
Atli hvetur þá sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni til að hafa samband við sig svo hægt sé að koma upplýsingum áfram til lögreglu. Jafnframt biður hann fólk um að tilkynna umræddar Facebook síður til Meta.


