Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands segist vera sleginn óhug eftir ferð til Þýskalands og þess uppgangs popúlíska þjóðernisflokksins AFD sem þar eigi sér stað. Segir hann ótta til staðar meðal þeirra Þjóðverja sem séu ekki hallir undir sjónarmið flokksins. Bendir Helgi til að mynda á að flokkurinn telji of mikið gert úr helförinni í sögukennslu í þýskum skólum. Segist Helgi velta fyrir sér hvort á Íslandi eigi sér stað uppgangur afla sem séu höll undir sams konar sjónarmið og AFD.
Sleginn óhug eftir ferð til Þýskalands og spyr hvort Ísland stefni í sömu átt