Lægð norðaustur af landinu stjórnar veðrinu í dag. Spáð er norðlægri átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, með áframhaldandi rigningu á Norður- og Austurlandi og frekar kalt í veðri, hiti verður á bilinu 5 til 10 stig.
Staðan er önnur sunnan heiða þar sem verður þurrt og allvíða bjart með hita að 16 stigum, en þó eru líkur á síðdegisskúrum við suðurströndina.
Á morgun, sunnudag er svo útlit fyrir hæglætis veður á landinu, stöku skúrir á stangli og það hlýnar heldur fyrir norðan og austan.