Hantaveirusmit kom upp á skemmtiferðaskipinu Hondiusi í byrjun maí. Skipið var sótthreinsað í Rotterdam í Hollandi og sigldi á nýjan leik í lok maí. Hondius kemur til Akureyrar 15. ágúst. Engar sértækar ráðstafanir eru fyrirhugaðar að sögn umboðsaðila skipsins á Íslandi.
Hafnaryfirvöld hafa hvorki verið í samskiptum við umboðsaðilann né skipafélagið Ocean Wide sem rekur Hondius.
Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri, segir ekkert því til fyrirstöðu að skipið komi til Akureyrar ef sóttvarnayfirvöld gera ekki athugasemdir við það.
Íris Hrund Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Gáru, umboðsaðila skipsins, segir það hafa verið þrifið rækilega og sótthreinsað og frekari ráðstafana sé ekki þörf.
„Skipið hefur farið í ítarlega hreinsun og samþykktarferli og er alveg fullkomlega öruggt til reksturs og þar á meðal siglinga til Íslands.“ Íris bætir við að Gára hafi ekki haft nein samskipti við yfirvöld vegna komu Hondiusar.
Sóttvarnalæknir telur litla ástæðu til að hafa áhyggjur
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segist ekki hafa fengið tilkynningu um komu Hondiusar. Skipið eigi að fara að þeim reglum sem gilda þar sem hópsýkingar hafa komið upp. Þá sé hantaveira staðbundin í Suður-Ameríku og almennt ekki ástæða til að hafa áhyggjur af útbreiðslu hennar hér á landi.
Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sagði á samskiptamiðlinum X í vikunni að enginn hefði látist úr hantaveirusmiti síðan 2. maí og ástandið væri stöðugt. Þrettán manns smituðust af hantaveiru á Hondiusi, þrír þeirra létust.