„Ef við horfum á stóru myndina þá eru góðu fréttirnar þær að við erum að þokast í rétta átt en ekki ranga átt. Við sjáum örlítinn heildarsamdrátt í á milli ára. Slæmu fréttirnar eru þær að við erum langt, langt á eftir áætlun. Þetta þarf að gerast miklu, miklu hraðar ef við ætlum að ná markmiðum Íslands. Það er bara þannig.“
Þannig byrjaði Jóhann Páll Jóhannsson ávarp sitt þegar hann kynnti nýjar losunartölur Íslands á þriðjudag og þetta voru engar ýkjur- á hvorugan veginn. Heildarlosun minnkaði örlítið milli ára, um 3,9 prósent og jókst meira að segja aðeins í vegasamgöngum.
Jóhann Páll kom í heimsókn í Spegilinn til að ræða losun gróðurhúsalofttegunda og aðgerðir til að draga úr henni, jafnt þær sem þegar hefur verið hrint af stokkunum og þær sem fyrirhugaðar eru og fjölmargt fleira sem tengist markmiðum og aðgerðum stjórnvalda í málaflokknum. Þar á meðal markmiðið um kolefnishlutleysi og merkingu - eða merkingarleysi - þess hugtaks. Hlusta má á viðtalið allt í spilaranum hér að neðan eða lesa heldur styttri útgáfu af því sem þar bar á góma áfram þar fyrir neðan.
Gætum neyðst til að kaupa losunarheimildir
Umhverfis og orkustofnun reiknast til að með sama áframhaldi náum við ekki nema tuttugu og eins prósents samdrætti í samfélagslosun til ársins 2030, frá því sem hún var 2005, eða rétt um helmingi þess fjörutíu og eins prósents sem að er stefnt. Samfélagslosun er sá flokkur losunar, sem bundinn er alþjóðasamningum um samdrátt, en undir hann falla meðal annars losun frá landbúnaði, fiskiskipaflotanum, urðun úrgangs og vegasamgöngum. Með sama áframhaldi neyðist Ísland til að kaupa losunarheimildir af öðrum ríkjum, eins undarlega og það kann að hljóma.
Ekki hægt að ausa endalausum fjármunum í orkuskipti bílaflotans
Jóhann Páll segir metfé hafa verið varið til þess að ýta undir orkuskipti í vegasamgöngum, en losun frá þeim nemur þriðjungi af samfélagslosuninni. Hann nefnir styrki til rafbílakaupa einstaklinga og fyrirtækja, niðurfellingu vörugjalds, uppbyggingu hleðsluinnviða, styrki til bílaleiga og fleira þessu til stuðnings. Það séu hins vegar takmörk fyrir því, hve miklu opinberu fjármagni sé hægt að verja til þessa.
„Við erum líka bara að komast á þann stað smám saman, að það er ekki lengur forsvaranlegt að setja marga milljarða á ári í rafbílastyrki.“
Jóhann Páll bendir á að um 80 prósent allra nýskráðra bíla almennings séu rafknúnir, sem sýni að almenningur sé þegar stokkinn á rafmagnsvagninn, enda stefni í að það verði bráðum hvergi betra að vera á rafbíl en á Íslandi. Reyndar gangi heldur hægar að fá bílaleigurnar til að skipta en almennig, en það sé þó allt á réttri leið.
Endurheimt ríkisvotlendis
Endurheimt votlendis og vistkerfa er árangursríkasta og mikilvægasta leiðin til að draga úr losun vegna landnotkunar og þar með heildarlosun, samkvæmt sérfræðingum Umhverfis- og orkustofnunar. Því er ráðherra sammála. Hann segir vinnu við stórfellda endurheimt votlendis á ríkisjörðum við það að hefjast, gröfurnar verði ræstar á næstu dögum eða vikum. Þá sé unnið að því að fá einkaaðila og landeigendur til samstarfs um hið sama.
Lögbundin markmið um kolefnishlutleysi óraunhæf
Ísland hefur ekki frekar en flest önnur ríki nein föst, mælanleg markmið um samdrátt heildarlosunar. Hins vegar það bundið í lög að Ísland skuli stefna að kolefnishlutleysi fyrir árið 2040, og á þessu er hnykkt í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, „ ... kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 svo Ísland verði áfram í fremstu röð í baráttu gegn hnattrænni hlýnun.“
Samkvæmt framreikningum Umhverfis- og orkustofnunar mun heildarlosun Íslands árið 2040 hins vegar nema 8,8 milljónum tonna CO2-ígildis.
Aðspurður, hversu raunhæft sé að ná þessu markmiði á 14 árum og hvað átt sé við með kolefnishlutleysi viðurkennir Jóhann Páll að hann telji nánast útilokað að ná þessu markmiði - og að hugtakið kolefnishlutleysi hafi aldrei verið skilgreint. Það hafi ekki legið fyrir hvað þetta þýddi þegar það var leitt í lög 2021, og heldur ekki þegar núverandi stjórn setti það í stjórnarsáttmálann.
Sér ekki hvernig á að láta það ganga upp að ná algjöru kolefnishlutleysi og segir hugtakið nánast marklaust
Hann segir að ný loftslagslög séu í smíðum í ráðuneytinu en að í þeim sé heldur ekki verið að hrófla við þessu tiltekna ákvæði. Í sérstöku bráðabirgðaákvæði sé hins vegar mælt fyrir um að farið verði í markvissa vinnu við að skilgreina þetta tiltekna markmið sérstaklega um leið og það verði tekið til skoðunar hvort það sé raunhæft.
„Vegna þess að ef maður er alveg hreinskilinn, og ef maður skoðar hvað hefur verið gert, hvernig losunartölurnar líta út, þá - ég hef ekki séð almennilega leiðina að því hvernig á að láta það ganga upp að ná algjöru kolefnishlutleysi 2040 en halda um leið áfram að vaxa sem samfélag og auka lífskjör á Íslandi,“ segir Jóhann Páll. „Þannig að þetta er eitt af því sem við erum að vinna að - að skilgreina kolefnishlutleysi og um leið meta raunhæfi þessa markmiðs.“
Þannig að eins og staðan er í dag, eins og við skiljum eða skiljum ekki kolefnishlutleysi í dag, þá er þetta hugtak bara nánast marklaust?
„Já. Ég mundi segja það,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra.