Landsréttur staðfesti í gær eins árs fangelsi yfir tveimur ungum konum fyrir smygl á Oxycontin. Þær voru 17 og 19 ára þegar þær reyndu að flytja 20 þúsund töflur til landsins sem komið hafði verið fyrir í ferðatöskum.
Stúlkurnar sögðust ekki hafa vitað af lyfjunum og kváðust hafa haldið að aðeins föt og peningar væru í töskunum. Töskurnar sögðust þær hafa fengið rétt fyrir brottför, þær voru læstar svo stúlkurnar komust ekki í að skoða innihald þeirra. Samskipti stúlknanna á samfélagsmiðli og skoðun á netnotkun þeirra varð þó til þess að dómari mat svör þeirra ótrúverðug.