Frakkar hafa heitið Sádi-Arabíu hernaðarstuðningi til að hjálpa til við að verja olíuinnviði í hafnarborginni Yanbu. Emmanuel Macron Frakklandsforseti greindi frá stuðningi Frakka við Sádi-Araba í sjónvarpsviðtali í Frakklandi.
Stuðningurinn felur í sér að Frakkar sendi hermenn, ratsjárkerfi og loftvarnarkerfi til verndar Yanbu.
Stjórnarherinn í Jemen segir að sex langdræg flugskeyti hafi verið stöðvuð sem beint var að skotmörkum í Taif og Yanbu.
Innviðir í og við Yanbu gegna mikilvægu hlutverki fyrir olíuframleiðslu og dreifingu. Borgin er mikilvæg hafnarborg og þar er helsta útflutningshöfn olíu frá landinu. Þaðan liggur mikilvæg olíuleiðsla til olíuvinnslusvæða austar í landinu nærri Persaflóa.
Dagblaðið Le Monde segir það ekki standa til að franski herinn taki þátt í neinum árásum heldur miðist stuðningurinn að því að verja olíuinnviði. Þá lagði hann áherslu á að Frakkar ætli að halda áfram að beita sér fyrir því með diplómatískum leiðum að Hormússund verði opnað á ný með viðræðum við Íran og Óman.
Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, neitaði því í gær í viðtali við Fox News að stjórnvöld í Íran væru að stýra árásum Húta. Hútar njóta stuðnings Írans og stjórnarherinn í Jemen nýtur stuðnings Sádi-Araba.
Að minnsta kosti 150 hútar og hermenn stjórnarhersins hafa fallið í átökum þeirra á milli síðasta sólarhringinn, samkvæmt fréttaveitu AFP.