Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness um að sýkna bæri starfsmann á leikskóla af ákæru um líkamsárás og barnaverndarlagabrot.
Starfsmaðurinn var ákærður vegna atviks sem átti sér stað í júní 2022. Foreldrar sögðust hafa séð starfsmanninn rífa af miklum krafti í öxl barns síns og draga hann síðan hágrátandi inn í leikskólann á meðan barnið sagði grátandi að starfsmaðurinn hefði meitt sig.
Mar og roða- eða brunaför voru á öxl barnsins. Starfsmaðurinn sagðist harma það. Aðrir starfsmenn sem báru vitni sögðu ekkert óvenjulegt eða óeðlilegt við framgöngu starfsmannsins.
Starfsmaðurinn neitaði því að hafa beitt barnið ofbeldi. Hann kvaðst hafa reynslu af því að takast á við börn sem glímdu við hegðunarerfiðleika og beittu jafnvel ofbeldi. Hann sagði barnið hafa hlaupið til sín og kastað sandi í andlit sitt. Þetta hefði barnið svo gert aftur. Starfsmaðurinn sagðist þá hafa gripið í peysu barnsins til að koma í veg fyrir að það hlypi aftur á brott. Síðan hefði hann leitt hann inn á leikskólann og haldið hæfilega fast í hönd barnsins svo það hlypi ekki í burtu.
Starfsmaðurinn var ákærður. Hann var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness. Dómari sagði að fyrir lægi að starfsmaðurinn hefði gripið of harkalega í hægri öxl barnsins á útileiksvæði þannig að það meiddist. Dómarinn sagði að slíkur vafi léki á því að starfsmaðurinn hefði haft minnsta ásetning til að meiða barnið að það fæli ekki í sér lögbrot. Áverka barnsins mætti frekar rekja til gáleysis starfsmannsins en ásetnings. Hann var því sýknaður á báðum dómstigum.