Eldurinn kom upp á þriðju hæð í íbúðahúsnæði við Klapparstíg, að sögn slökkviliðs.
„Það er alveg talsvert tjón,“ segir Björn Ingi Guðjónsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir að einn hafi verið fluttur með sjúkrabíl til athugunar.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.
Hann segir að útkallið hafi borist rétt upp úr klukkan 6.
Allar stöðvar slökkviliðs hafi verið ræstar út en vel hafi gengið að slökkva eldinn. Hann bætir við að reykræstingarvinna sé hafin.
Frekari upplýsingar liggi ekki fyrir að svo stöddu.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.