Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastýra Laufásborgar, er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun, en þetta er í sextánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.
Jensína Edda, eða Jensa eins og hún er gjarnan kölluð, var mætt eldsnemma í morgun í Veiðihúsið við Elliðaár, en formleg opnun árinnar er í dag. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri var mætt, tilkynnti valið á Reykvíkingi ársins og óskaði Jensu til hamingju. Hún sagði ánægjulegt að heiðra svo öflugan eldhuga og frumkvöðul í skólamálum sem sannarlega hefði snert líf margra fjölskyldna í borginni síðastliðna tvo áratugi.
Að lokinni hressingu og spjalli héldu Jensa og borgarstjóri ásamt veiðileiðsögumanni á Breiðuna. Þar renndi Jensa fyrir laxi í boði borgarstjórans í Reykjavík og Stangveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft umsjón með ánum í 87 ár.
Helgar líf sitt börnum
Óskað var eftir tilnefningum um einstaklinga sem hafa með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt og eiga skilið að fá tilnefninguna Reykvíkingur ársins.
Þetta starf er galdur
Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu titilinn. Í tilnefningum kom meðal annars fram að Jensa, eins og hún er ávallt kölluð, væri þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi. Hún væri lausnamiðuð og starfaði af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum.
„Þetta starf er galdur og það heldur okkur á tánum. Það sem þú þarft að hafa er þinn innri styrkur og þú þarft að hafa sjálfstraust í þetta og vera vel meinandi manneskja sem trúir því að kærleikurinn sé besti leikurinn,“ er haft eftir Jensu í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.