Flækt í kaf­kaískt stjórnsýslu­legt hel­víti - Vísir

Flækt í kaf­kaískt stjórnsýslu­legt hel­víti - Vísir

Flækt í kaf­kaískt stjórnsýslu­legt hel­víti - Vísir

„Hvernig má þetta vera?“ spyr Dagný sem er orðin dauðuppgefin á því að standa í þessu máli sem er illskiljanlegt venjulegu fólki. Tengdasonur hennar er með alþjóðleg ökuskírteini en á því tekur lögreglan á Suðurnesjum ekki mark.

Dagný segir fólk af erlendum uppruna vera að lenda ítrekað í þessu og hún er hreinlega farin að velta því fyrir sér hvort um rasíska hegðun lögreglu sé að ræða? Lögmaður hennar, Helgi Þorsteinsson Silva, segir um gat að ræða í kerfinu og fjölmargir séu að lenda í þessu.

Frásögn Dagnýjar er löng en sannarlega eftirtektarverð. Svo virðist sem íslensk stjórnsýsla sé ekki að dansa í takti. Sjálf segist hún sitja í súpunni.

Löggan snögg til og sendi kæru

„Fyrir hönd viðkomandi sendi ég fyrirspurnir og bað um rök og benti á að viðkomandi hafi fylgt öllum lögum og reglum. Lögreglan á Suðurnesjum var snögg til og sendi kæru og tilkynnti að höfða ætti sakamál fyrir Héraðsdómi Reykjaness til að fá þessar sektir greiddar.“

Dagný útskýrir að þeim sem koma til landsins sem erlendir ríkisborgarar sé skylt að kynna sér íslensk lög og reglur og fara eftir þeim.

„Kynna sér þær reglur sem gilda í landinu um heimild til aksturs. Ef hins vegar mismunandi stofnanir gefa mismunandi upplýsingar þá er það víst þannig að einstaklingurinn er talinn bera ábyrgð á því. Lögin og reglurnar eru svo snúnar að dómarinn misskilur þær líka og dómsmálið er á okkar kostnað. Þótt við höfum gert allt til að ræða málin og rökstyðja þá er send kæra og málskostnaðurinn okkar.“

Tengdasonurinn vill forðast vesen

Dagný segir tengdasoninn vilja borga sektina og fá það út úr heiminum. Hann vilji sem minnst af þessu vita, hann vilji ekkert vesen en Dagný er ekki þannig skapi farin. Þann 1. júní kom niðurstaða í héraði; viðkomandi á að greiða sektina og allan málskostnað sem slagar samanlagt upp í milljón. Dagný segist ekki eiga fyrir þessari sekt enda nýkomin úr erfiðri aðgerð.

Tengdasonur Dagnýjar lenti í stjórnsýslulegu gati. Hann vill ekkert vesen en réttlætiskennd Dagnýjar býður henni ekki upp á að láta þetta yfir sig ganga.vísir/bjarni

„Fyrir dómsmálið reyndum við að leita ráða og reyna að skilja lögin og sendum tölvupóst á dómsmálaráðuneytið. Dómsmálaráðuneytið er yfir lögreglu- og sýslumannsembættum svo við væntum þess að fá góðar útskýringar.“

En svo gott var það nú ekki. Í svari frá ráðuneytinu sagði meðal annars: „... ríkisborgurum utan EES er heimilt að nota erlend ökuskírteini í sex mánuði áður en skipta þarf yfir í íslenskt ökuskírteini. Unnt er að skipta yfir í íslensk ökuskírteini eftir sex mánaða fasta búsetu á landinu.“

Dagný segir hér ekki verið að fjalla um umsækjendur um alþjóðlega vernd. Umsækjendur um hana geta ekki fengið staðfesta „fasta búsetu“ frá þjóðskrá því þeir séu aðeins í „þolanlegri dvöl“ í landinu.

„Þeir eru í óvissu, þeir vita ekki hvað þeir verða lengi í landinu og aðalmálið hér er að þeir geta ekki sótt um íslensk ökuskírteini ef þeir hafa ekki fasta búsetu. Samanber aðra málsgrein í bréfinu: „Umsækjendur um alþjóðlega vernd eru í svokallaðri þolanlegri dvöl á meðan umsókn þeirra er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Á meðan umsóknin er í vinnslu getur viðkomandi ekki skráð lögheimili sitt hér á landi og telst þar af leiðandi ekki hafa „fasta búsetu“ í landinu enda er viðkomandi ekki kominn með dvalarleyfi á þeim tímapunkti, sbr. 49. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Af þessu má ráða að umsækjendur um alþjóðlega vernd geti ekki sótt um íslenskt ökuskírteini.“

Misvísandi upplýsingar

Dagný, sem er komin miklu dýpra í lög og reglur um útlendingamál en hún hafði ætlað sér, lýsir því að í skilgreiningu í viðaukalögum sé útskýrt hvað föst búseta er en þar er átt við stað þar sem hlutaðeigandi býr að jafnaði í að minnsta kosti 185 daga, það er í sex mánuði á hverju almanaksári. Þetta er vegna persónu- eða atvinnutengsla eða, þegar um er að ræða þann sem hefur engin atvinnutengsl, vegna persónulegra tengsla sem sýna náið samband milli hlutaðeigandi og staðarins þar sem hann býr.

„- Föst búseta er talin vera komin á þegar hlutaðeigandi uppfyllir a.m.k. eitt þeirra skilyrða sem tilgreind eru í 2. mgr.“

Námsdvöl við menntastofnun felur ekki sjálfkrafa í sér að viðkomandi sé talinn hafa fasta búsetu hér á landi.

„Hér kemur ekki fram varðandi umsækjendur um alþjóðlega vernd – þeir búa ekki að jafnaði í 6 mánuði hér á Íslandi vegna persónu- eða atvinnutengsla,“ segir Dagný.

Lögreglan á Suðunesjum herðir tökin

Lögreglan á Suðurnesjum virðist að sögn Dagnýjar hins vegar túlka þennan viðauka sem svo að með fastri búsetu sé átt við þann stað sem hlutaðeigandi býr að jafnaði í a.m.k. 185 daga eða 6 mánuði á hverju almanaksári en sleppa því að tengja við vegna persónu- eða atvinnutengsla því það er skoðað hvort raunveruleg tengsl séu við Ísland!

Dagný segist ekki fá varist þeirri hugsun að aðgerðir lögreglu séu á einhvern hátt af rasískum toga sprottnar.vísir/bjarni

„Með enga tengingu við það hver það er og þá að viðkomandi er hér sem umsækjandi um alþjóðlega vernd og getur þá ekki skráð sitt lögheimili hér á landi og telst því ekki hafa „fasta búsetu“ samkvæmt lögum og staðfestum upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu. Hvernig eiga einstaklingar í viðkvæmri stöðu hér á landi að afla sér upplýsinga þegar stofnanir gefa mismunandi og villandi upplýsingar?“ spyr Dagný forviða.

Hún segir lögregluna á Suðurnesjum hafa sektað marga umsækjendur um vernd, sem er fólk í viðkvæmri stöðu, það sé að reyna að fylgja reglum en sé svo sektað fyrir það.

„Fólk í viðkvæmri stöðu borgar bara og vill ekki lenda í kasti við lögin eða spyrja of margra spurninga svo það komi þeim ekki í vandræði og þau missi möguleika á því að hljóta vernd hér á landi.“

Staða tengdasonarins vonlaus

Dagný segir tengdason sinn hafa komið til landsins í janúar 2023 og sótt þá um alþjóðlega vernd. Rúmu ári seinna er hann enn í biðstöðu og býr í Reykjavík.

„Hann var stöðvaður í Keflavík, ekki fyrir neitt, aðeins við eftirlit þar sem hann er dökkur á hörund og á svæði þar sem margir umsækjendur um alþjóðlega vernd eru búsettir. Hann sýnir sitt erlenda ökuskírteini ásamt gildu alþjóðlegu ökuskírteini.“

Enginn vilji var hins vegar hjá lögreglu til að skoða það skírteini, einungis var sagt að hann hefði verið á Íslandi í meira en 185 daga og ætti þar með að vera kominn með íslenskt ökuskírteini.

„Þetta var reyndar ekki útskýrt frekar heldur var hann einfaldlega sektaður fyrir að vera ekki með íslensk ökuskírteini. Sektin var 40.000 kr. Við biðum eftir gíróseðlinum til að greiða. Þegar gíróseðillinn skilaði sér ekki hringdi ég til sýslumannsins og þar fannst sektin ekki í kerfinu og staðfest að hún hafi verið felld niður. Engin skrifleg tilkynning barst til hans um þessa niðurfellingu og enginn gíróseðill hefur enn borist.“

Dæmdur á sérkennilegum forsendum

Hér kemur enn eitt „Catch 22“ inn í myndina. Viðkomandi umsækjandi um alþjóðlega vernd er með alþjóðlegt ökuskírteini í gildi.

„Hann má ekki eða getur ekki sótt um íslensk ökuskírteini þar sem hann getur ekki fengið staðfesta „fasta búsetu“ hjá Þjóðskrá. Af hverju var hann stöðvaður af lögreglunni? Af hverju er alþjóðlega skírteinið ekki skoðað og tekið gilt? Af hverju er sektin felld niður? Af hverju er sagt að hann eigi að vera kominn með íslensk ökuskírteini? Af hverju er hann svo dæmdur fyrir héraðsdómi til að greiða þessa sekt?“

Dagnýn segir enga leiða að fá botn í reglurnar sem gilda, ekki bara fyrir óbreytta heldur virðist dómarinn ekkert skilja í þessum reglum heldur.vísir/bjarni

Blaðamaður á erfitt með að svara þessum spurningum. Í dómi segir: „Í máli þessu liggur fyrir að þegar ákærði var stöðvaður af lögreglu hið fyrra skipti (rúmu ári eftir komu til landsins) hafði hann í um eitt ár verið með fasta búsetu hér á landi. Af þeim sökum verður ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærunni, þ.e. fyrir að hafa ekið án gildra ökuréttinda, enda hafði hann ekki fengið útgefið íslensk ökuskírteini.“

Dagný segir að viðkomandi geti ekki verið skráður með „fasta búsetu“, hann sé ekki með ógild ökuréttindi þar sem hann sé með alþjóðlegt ökuskírteini og ekki sé hægt að sekta hann fyrir að hafa ekki fengið sér íslensk ökuskírteini þegar reglur landsins einfaldlega leyfa það ekki.

„Ef dómarinn skilur ekki lögin, hvernig eiga umsækjendur um vernd að gera það? Þetta er rangt og einfaldlega mannréttindabrot að dæma á röngum forsendum,“ segir Dagný.

Málinu fækt frá Heródesi og Pílatusar

Tengdasonurinn giftist dóttur Dagnýjar eftir meira en árs dvöl í landinu og fékk vinnu og kerfiskennitölu til að geta framfleytt sér. Að sögn Dagnýjar er hann duglegur og vill vinna.

„Hálfu ári síðar fær hann niðurstöðu Útlendingastofnunar um að umsókninni um alþjóðlega vernd hér á landi sé synjað og hann eigi að yfirgefa landið eftir viku. Hann verður að yfirgefa starfið sitt, konuna sína og fara af landi brott í boði íslenskra stjórnvalda. Kostnaðurinn er mikill fyrir ríkið en tölurnar um það hvað búið er að senda marga úr landi eru það sem kannski skiptir þáverandi dómsmálaráðherra meira máli.“

Þremur mánuðum síðar kemur hann aftur til Íslands. Dagný segir þá mánuði hafa verið erfiða.

„Hann sækir um dvalarleyfi enda giftur íslenskri konu, fær dvalarleyfi, sækir um vinnu, fær vinnu, óskar eftir ökutímum en má ekki byrja að taka tíma fyrr en hann er kominn með skráða fasta búsetu! Hér byrjum við aftur,“ segir Dagný og fer hrollur um hana.

Gripinn aftur

Eftir nokkurra mánaða dvöl með umsókn um dvalarleyfi í ferli þarf að fá skráð lögheimili og búsetuvottorð hjá Þjóðskrá. Þar með er viðkomandi loks kominn með svokallaða „fasta búsetu“.

„Við fögnum því en nú tekur við 6 mánaða skyldubið þangað til hann má fara í ökutíma og fara í ökuskólann til að fá loksins íslenskt ökuskírteini. Þessir 6 mánuðir líða og strax byrjar viðkomandi í ökutímum og í lok mánaðarins er ökuprófið áætlað. Enn og aftur fer viðkomandi til Keflavíkur og enn þá er hann dökkur á hörund,“ segir Dagný.

Þar stöðvar lögreglan hann og eru engar ástæður fyrir því nema kannski að hann er dökkur á hörund í Keflavík, að sögn Dagnýjar.

Dagný með kanínuna sína sem stundum virðist vera hennar eina haldreipi.vísir/bjarni

„Viðkomandi sýnir dvalarleyfið, búsetuvottorðið og sýnir að hann er í ökutímum í þessum mánuði sem þú hefur til að klára það og fá ökuskírteinið afhent. Hann er innan tímamarka, fylgir lögum og reglum í öllu en enn og aftur eru upplýsingarnar sem viðkomandi sýnir ekki teknar gildar og hann sektaður fyrir að vera ekki með íslenskt ökuskírteini.“

Haldlausar varnir ákærða um réttmæta villu

Málið fer fyrir dóm og í úrskurði segir: „Samkvæmt viðauka reglugerðar um ökuskírteini og „fasta búsetu“... er erlendum ríkisborgurum heimilt að aka bifreið hér á landi á grundvelli ökuskírteinis útgefnu af ríki utan EES í allt að sjö mánuði.“

Sem Dagný segir að skiljist þannig að þegar þú ert kominn með staðfesta „fasta búsetu“ hjá Þjóðskrá þarftu að bíða í 6 mánuði þar til þú mátt taka ökutíma, fara í ökuskólann og fá í framhaldinu íslensk ökuskírteini.

„Það var einmitt í 7. mánuðinum sem viðkomandi var að taka ökutíma sem hann er sektaður fyrir að vera ekki með íslensk ökuskírteini. Þetta er sem sagt líka rangt,“ segir Dagný forviða.

Í dómnum segir: „Haldlausar eru varnir ákærða er lúta að því að hann hafi verið í réttmætri villu um heimildir sínar til aksturs bifreiðar.“

Dagný segir að nú þurfi hver og einn að meta fyrir sig samkvæmt því sem fram hefur komið hér að ofan hvað eigi við.

„Stofnanir gefa ekki fullnægjandi upplýsingar, heldur óskýrar og villandi upplýsingar. Lögreglan túlkar lögin á sinn hátt og einstaklingurinn þarf að sitja uppi með að fylgja lögum en vegna mistúlkana vera sektaður fyrir háar upphæðir.“

Ítrekaðar fyrirspurnir

Dagný segist hafa hringt, hún hafi sent marga tölvupósta með fyrirspurnum.

„Við vildum fá svör, útskýringar og röksemdir fyrir sektunum. Ég hafði samband við lögregluna á Suðurnesjum og útskýrði flækjuna og taldi að viðkomandi ætti ekki að vera sektaður þar sem hann væri að fylgja lögum og reglum og hefði ekki brotið af sér. Mér var tjáð að þau gætu sent mér „idiot proof“ upplýsingar.“

Í ferlinu var tengdasyninum send kæra fyrir fyrri sektina sem hafði verið felld niður. „Kæra fyrir seinni sektina þegar viðkomandi er kominn með dvalarleyfi, skráða fasta búsetu og er að taka ökutíma í sjöunda mánuðinum eins og á að gera. Viðkomandi fylgdi lögunum en samt er hann kærður! Þetta er mannréttindabrot!“

Venesúela flóttamenn mótmæla brottflutningi við útlendingastofnun. Ísland hefur ekki komið sérlega vel fram við flóttafólk þaðan. Þau fengu skilaboð frá fráfarandi ríkisstjórn að þau væru velkomin en síðar var þeirri ákvörðun snúið við.vísir/vilhelm

Dagný segir dómsúrskurðinn fela í sér 80 þúsund króna sektargreiðslu eða fangelsun í sex daga. Ákærða var gert að greiða allan sakarkostnað málsins eða samtals 706.800 kr.

„Við fórum ekki í mál, við vildum útskýringar. Það þurfa allir að fylgja lögum og lögin þurfa að vera skýr. Viðkomandi fylgdi lögum en dómsvaldið virðist ekki túlka lögin eða skilja lögin og lögreglan ekki heldur,“ segir Dagný.

Ráðuneytið staðfestir skilning Dagnýjar

Hún lýsir samtali við lögmanninn hjá dómsmálaráðuneytinu eftir niðurstöðu héraðsdóms til að benda á þær upplýsingar sem fengnar voru frá honum fyrir dómsmálið.

„Þá vorum við að leita ráða og reyna að skilja lögin því dómsmálaráðuneytið ræður yfir lögreglu- og sýslumannsembættum og ætti að hafa málin á hreinu. Góðar útskýringar fengust frá dómsmálaráðuneytinu. Þær upplýsingar staðfestu okkar mál og staðfestu að embættin væru að gefa okkur rangar upplýsingar og sekta af röngum ástæðum.“

Eftir það samtal fékk Dagný bréf þar sem segir:

„Málefni er varða ökuréttindi ríkisborgara þriðju ríkja sem ekki hafa dvalarleyfi á Íslandi hafa orðið tilefni til þess að ráðuneytið taki til skoðunar hvort upplýsingagjöf stjórnvalda á þessu sviði sé nægilega skýr og samræmd.“

Að sögn Dagnýjar hefur leit hennar að sannleikanum í málinu orðið til þess að ráðuneytið mun endurskoða hvort upplýsingagjöf stjórnvalda sé ásættanleg.

„En tjónið er okkar, sektin og málskostnaður upp á 706.800 kr. Ekki einu sinni takk fyrir að vekja okkur til umhugsunar, þetta þarf að laga og endurgreiða okkur allt það umstang og fjárhæðir sem réttlætið hefur kostað okkur,“ segir Dagný hlessa.

Kallar eftir aðstoð almennings

Sjálf segist hún ekki hafa efni á að greiða þennan málskostnað og sektargreiðslur. Hún vill réttlæti og vill áfrýja þessum dómi til Landsréttar eða biðja um endurupptöku málsins. Annað sé ekki í boði.

„Við viljum réttlæti fyrir viðkomandi og fyrir alla þá sem koma hingað til lands. Að lögin séu skýr, að upplýsingar frá stofnunum séu skýrar og að lögreglan túlki lögin eins og allir hinir. Við biðjum um hjálp, því ekki vill stjórnvaldið viðurkenna eða reyna að skilja þennan vanda sem einstaklingur er settur í og refsað fyrir.“

Að sögn lögmannsins væri lítið mál að kippa þessu í liðinn fyrir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.vísir/anton brink

Dagný segist því neyðast til að leita til stofnana og einstaklinga sem eru til í að hjálpa til við málskostnað og leita eftir leiðréttingu á málinu. „Við höfum tvær vikur til að taka ákvörðun um að áfrýja en til þess að geta það þurfum við að geta greitt málskostnaðinn sem verður a.m.k. milljón í viðbót. Þetta er spurning um mannréttindi, mannúð og réttlæti og við erum tilbúin að halda áfram þar til réttlæti er náð til að koma í veg fyrir að fleiri einstaklingar eigi á hættu að lenda í sömu stöðu og geti ekki leitað réttar síns.“

Dagný segir ekki við þetta búandi og það sé síst orðum aukið að tengdasonur hennar hafi lent í kafkaísku stjórnsýslulegu helvíti. Ísland eigi að sýna réttlæti og stjórnvöld ættu að hafa upplýsingagjöfina skýra og samræmda. „Ekki lögvillu sem bitnar á saklausum einstaklingnum,“ segir Dagný og bendir á að hún sé með dagnybjarna@gmail.com. Þá hefur hún stofnað styrktarreikning: 0528-14-404990 ef einhver vill leggja henni lið í þessari þrautagöngu.

Illa farið með fé almennings

Lögmaður Dagnýjar er Helgi Þorsteinsson Silva og hann segir þarna gat í kerfinu sem gangi ekki upp. Hann býður nú niðurstöðu úr tveimur málum hliðstæðum sem hann hefur verið að reka í Landsrétti. Þetta séu augljóslega gölluð lög.

„Þetta er frekar áhugavert. Það hefur örugglega ekki verið meiningin að ætlun löggjafavaldsins að þetta myndi hafa þessar afleiðingar, þessi lög, að hafa þetta með þessum hætti. Ég hugsa að þetta hafi verið hannað þegar umsóknarferlið hjá Útlendingastofnun var þrír mánuðir.“

Helgi lögmaður segir tengdason Dagnýjar hafa lent í stjórnsýslulegu gati. Misræmi er í reglum og svo virðist sem lögreglan á Suðurnesjum sé nú með rassíu í gangi, margir innflytjendur með alþjóðlegt ökuskírteini eru að lenda í þessu nú um stundir.vísir/steingrímur dúi

Í sem allra skemmstu máli þá myndast gat hjá innflytjendum sem ekki koma frá Evrópu. Þeir eiga að taka íslenskt ökupróf til að tryggja að þeir kunni reglurnar hér.

„Þetta gildir til að mynda ekki um ferðamenn,“ segir Helgi og rekur að þar búi fjárhagslegar ástæður að baki.

„Við verðum að vera líbó með það. En það er engin ástæða til að ætla að útlendingur sé verri í að keyra, flestar þjóðir eru með þetta þannig að ferðamenn geti keyrt.“

Dómsmálaráðherra gæti kippt þessu í liðinn

Þetta snýst hins vegar um mismuninn á kennitölu og fastri búsetu. Helgi færði rök fyrir því, gagnvart dómi, að þú komist ekkert að fyrr en þú ert með kennitölu. En gengið er út frá því að búseta og lögheimili séu sama hugtakið.

„Þetta er einhver Evrópureglugerð sem miðast við sex mánaða dvöl. Þeir eru ekki með þetta kennitölusystem. Sex mánuðum eftir að þú ert komin til landsins áttu að vera kominn með próf, ég hugsa að þetta hafi ekki verið hugsað þannig,“ segir Helgi.

Hann segir að horft hafi verið fram hjá þessum galla í lögum þar til nýverið þegar einhver rassía hafi verið gerð hjá lögreglu og nú séu fjölmargir að lenda í þessu sér til mikillar hrellingar. Hann segir að dómsmálaráðherra gæti hæglega kippt þessu í liðinn á einum degi ef hún bara vildi.

„Þetta er ekki góð ráðstöfun á almannafé, að eltast við þetta,“ segir Helgi. „Þetta er óþarfa kostnaður og flækjustig. Það er fráleitt að ætlast til þess að innflytjendur viti af þessu og jafnvel þó þeir kynni sér þetta er ekki augljóst að svona sé í pottinn búið.“

#flækt #helvíti #kafkaískt #stjórnsýslulegt #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262898942d/flaekt-i-kafkaiskt-stjornsyslulegt-helviti

📰 Aðrar fréttir

Skjálfti að stærð 2,9 á Reykjaneshrygg
📅 20.06.2026 👁️ 0
Skjálfti að stærð 2,9 á Reykjaneshrygg
Jarðskjálfti að stærðinni 2,9 varð klukkan 03:44 í nótt. Skjálftinn varð úti á sjó á Reykjaneshryggnum vestan við Eldey. Nokkrir smærri skjálftar riðu...
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldri borgarar og ESB
📅 20.06.2026 👁️ 0
Óttar Guðmundsson skrifar: Eldri borgarar og ESB
Helsta umræðuefni landsmanna á netmiðlum er væntanleg þjóðaratkvæðisgreiðsla á höfuðdaginn 29. ágúst um ESB. Mörgum liggur mikið niðri fyrir og hógvær...
Maður sem myrti tveggja ára stjúpdóttur sína stunginn til bana í fangelsi af þremur alræmdustu morðingjum Bretlands – Myndband
📅 20.06.2026 👁️ 0
Maður sem myrti tveggja ára stjúpdóttur sína stunginn til bana í fangelsi af þremur alræmdustu morðingjum Bretlands – Myndband
Þrír af hættulegustu föngum Bretlands hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn eftir að hafa ráðist inn í klefa barnamorðingj...
Fyrrum bæjarfulltrúi og embættismaður lætur nýja bæjarstjórann heyra það - „Stýra umræðunni með hárréttum rökbrellum“
📅 20.06.2026 👁️ 0
Fyrrum bæjarfulltrúi og embættismaður lætur nýja bæjarstjórann heyra það - „Stýra umræðunni með hárréttum rökbrellum“
Fyrrum bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og síðar embættismaður hjá bænum gagnrýnir Vilhjálm Árnason, sem tók við embætti bæjarstjóra fyrir 17 dögum, harðle...
Sýknaður af öllum ákærum um ofbeldi gegn barnsmóður sinni - Horft til þess að hún svaraði fyrir sig
📅 20.06.2026 👁️ 0
Sýknaður af öllum ákærum um ofbeldi gegn barnsmóður sinni - Horft til þess að hún svaraði fyrir sig
Landsréttur hefur sýknað karlmann af öllum ákæruliðum, sem eftir stóðu, fyrir meint ofbeldi gegn barnsmóður hans og fyrrum sambýliskonu. Maðurinn hafð...
Sex­tán stig en líkur á síðdegisskúrum - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 0
Sex­tán stig en líkur á síðdegisskúrum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands segir að í dag verði lægð fyrir norðaustan land og áttin því norðlæg, víða 5-13 m/s.  Áfram verði rign...
Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 0
Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða - Vísir
Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og 9 hafi lagt af stað úr Hvalfirði um klukkan 22 í gær. Annar báturinn hefur se...
Mikið tjón eftir eld á Klappar­stíg - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 0
Mikið tjón eftir eld á Klappar­stíg - Vísir
Eldurinn kom upp á þriðju hæð í íbúðahúsnæði við Klapparstíg, að sögn slökkviliðs. „Það er alveg talsvert tjón,“ segir Björn Ingi Guðjónsson, aðstoðar...
Starmer liggur undir feldi um helgina
📅 20.06.2026 👁️ 0
Starmer liggur undir feldi um helgina
Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands er sagður vera að íhuga stöðu sína sem leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra yfir helgina.The Times...
IPO Trends in 2025 and the Entertainment Surge
📅 20.06.2026 👁️ 0
IPO Trends in 2025 and the Entertainment Surge
347 IPOs. $44 billion raised. A 54% jump from 2024, when only 225 companies bothered going public. Deloitte, DFIN, and EY all published reports on it,...
Green light for new 160-space modular multi-storey car park in El Médano
📅 20.06.2026 👁️ 0
Green light for new 160-space modular multi-storey car park in El Médano
A major new parking facility for El Médano has moved a step closer after the Granadilla de Abona Town Hall officially awarded the construction contrac...
Asparglyttufaraldur herjar á landið
📅 20.06.2026 👁️ 0
Asparglyttufaraldur herjar á landið
Asparglytta fannst í fyrsta sinn á Austurlandi í fyrrasumar. Hennar varð fyrst vart á Íslandi 2004 og síðan hefur hún breiðst hratt út og landsmenn ha...
„Náði ég að sannfæra þig? Nei. Og það breyttist ekkert núna í morgun sko“
📅 20.06.2026 👁️ 0
„Náði ég að sannfæra þig? Nei. Og það breyttist ekkert núna í morgun sko“
Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um stofnun innviðafélags var samþykkt á Alþingi með 34 atkvæðum stjórnarliða.Stjórnarandstæðingar greiddu ekki ...
„Það er ekkert frítt í þessu“
📅 20.06.2026 👁️ 0
„Það er ekkert frítt í þessu“
Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um stofnun innviðafélags var samþykkt á Alþingi með 34 atkvæðum stjórnarliða.Stjórnarandstæðingar greiddu ekki ...
Vatnsendi: 16 ára strákur erfði framtíðarbyggingarland höfuðborgarsvæðisins
📅 20.06.2026 👁️ 0
Vatnsendi: 16 ára strákur erfði framtíðarbyggingarland höfuðborgarsvæðisins
Sextán ára strákur í Kópavogi fékk óvenjulegan arf þegar faðir hans lést árið 2018. Strákurinn erfði hina flennistóru Vatnsendajörð við Elliðavatn í K...
Ryanair gives O’Leary new contract until 2032 with potential €267 million bonus
📅 20.06.2026 👁️ 0
Ryanair gives O’Leary new contract until 2032 with potential €267 million bonus
Ryanair has secured the future of its long-serving chief executive, Michael O’Leary, after agreeing a new contract that will keep him at the helm of E...
SATURDAY WEATHER: Cloudy north, sunny south as Canary Islands enjoy more pleasant weather
📅 20.06.2026 👁️ 2
SATURDAY WEATHER: Cloudy north, sunny south as Canary Islands enjoy more pleasant weather
Residents and visitors across the Canary Islands can expect another pleasant summer day today, Saturday, with low cloud affecting northern areas durin...
Frétta­tía vikunnar: Kæra, Haf­þór og Florencia - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 2
Frétta­tía vikunnar: Kæra, Haf­þór og Florencia - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Sem fyrr er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttatían ...
Alþingi komið í sumarfrí
📅 20.06.2026 👁️ 2
Alþingi komið í sumarfrí
Alþingi fór í sumarfrí núna á fimmta tímanum.Á lokadögum þingsins samþykkti það fjölda mikilvægra stjórnarfrumvarpa og í dag var öðrum frumvörpum fres...
World Cup 2026: The real Brazil have still to show up
📅 20.06.2026 👁️ 0
World Cup 2026: The real Brazil have still to show up
While rivals Argentina and France have impressed in the United States, Brazil have struggled to hit top form - despite a 3-0 win over minnows Haiti.
World Cup 2026: Paraguay's Miguel Almiron sent off for covering mouth while speaking to opponent
📅 20.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Paraguay's Miguel Almiron sent off for covering mouth while speaking to opponent
Paraguay's Miguel Almiron is the first player to be shown a red card for covering his mouth while speaking to an opponent - doing so during the World ...
ÖBÍ gagnrýnir lagabreytingar á lögum um sjúkratryggingar
📅 20.06.2026 👁️ 1
ÖBÍ gagnrýnir lagabreytingar á lögum um sjúkratryggingar
Málefnahópur Öryrkjabandalags Íslands gagnrýnir harðlega að komugjöld séu undanskilin í nýjum lögum um sjúkratryggingar í almenna greiðsluþátttökukerf...
Harry and Meghan offered royal accommodation during UK visit
📅 20.06.2026 👁️ 2
Harry and Meghan offered royal accommodation during UK visit
The Duke and Duchess of Sussex have been offered a royal residence to stay in during their visit to the UK with their children next month.Prince Harry...
H5-afbrigði fuglaflensu greint í fyrsta sinn
📅 20.06.2026 👁️ 2
H5-afbrigði fuglaflensu greint í fyrsta sinn
Vísindamenn hafa greint fyrsta tilfellið af fuglaflensu, af H5-afbrigði, í Ástralíu í fyrsta sinn. Þessi bráðsmitandi veira hefur nú greinst í öllum h...
Flawed but relentless Scotland show themselves as men of substance
📅 20.06.2026 👁️ 0
Flawed but relentless Scotland show themselves as men of substance
Morocco threatened to blow Scotland away early on, but Steve Clarke's squad showed their resilience, writes Tom English.
Sjóherinn gerði 6 tonn af kókaíni upptæk
📅 20.06.2026 👁️ 1
Sjóherinn gerði 6 tonn af kókaíni upptæk
Sjóherinn í El Salvador gerði rúmlega sex tonn af kókaíni upptæk sem verið var að smygla í tveimur skipum á Kyrrahafi í fyrradag. Heildarverðmæti fíkn...
Scotland fans dejected after loss to Morocco at World Cup
📅 20.06.2026 👁️ 2
Scotland fans dejected after loss to Morocco at World Cup
Scotland fans at home and in the US are dejected after losing a crucial World Cup match against Morocco in Boston.After defeating Haiti 1-0 last Satur...
Málningin flagnar í lauginni í Washington
📅 20.06.2026 👁️ 2
Málningin flagnar í lauginni í Washington
Málningin flagnar í lauginni í Washington Banda­ríkja­for­seti lét mála botn laug­ar­inn­ar við Lincoln minn­is­merk­ið í Washingt­on blá­an. Næst kom...
Taking supplements every day? You might be doing more harm than good
📅 20.06.2026 👁️ 2
Taking supplements every day? You might be doing more harm than good
I did not see myself as an avid supplement taker, but then I took a good look in my cupboard. Without realising it, I had accumulated several pouches ...
Driver dies and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
📅 20.06.2026 👁️ 2
Driver dies and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
A train driver has died and 89 people have been injured after two trains collided in the Bedford area as police declare a major incident.Eleven people...
How to stay safe in the water this summer, while still having fun
📅 20.06.2026 👁️ 2
How to stay safe in the water this summer, while still having fun
When temperatures rise, outdoor swimming can be a fun and often free day out - but it is not without risk. During last month's hot weather, at least 1...
Jóhann Páll: Vindmyllurnar munu bara rísa á „örfáum afmörkuðum svæðum“
📅 20.06.2026 👁️ 1
Jóhann Páll: Vindmyllurnar munu bara rísa á „örfáum afmörkuðum svæðum“
Vindorkuver munu einvörðungu rísa á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við nærsamfélagið segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðh...
Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? - MBL.IS
📅 19.06.2026 👁️ 2
Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? - MBL.IS
Jakob Frímann Magnússon, einn aðalskipuleggjenda tónlistarveislunnar Bergmáls sem fram fer á Þingvöllum á morgun, segir uppsetningu sviðs- og veitinga...
Vita ekki hve mörg torfhús eru á Íslandi - MBL.IS
📅 19.06.2026 👁️ 2
Vita ekki hve mörg torfhús eru á Íslandi - MBL.IS
Engin sérstök úttekt hefur verið gerð á þeim fjölda torfhúsa sem finna má á Íslandi.Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari Jóhanns Páls Jóhannsson...
What type of World Cup fan are you?
📅 19.06.2026 👁️ 1
What type of World Cup fan are you?
The 2026 men's World Cup is under way with excited football fans cheering on their teams. But what type of fan are you - a die-hard enthusiast analysi...
Ósakhæfir vistaðir á Hólmsheiðarsvæðinu - MBL.IS
📅 19.06.2026 👁️ 2
Ósakhæfir vistaðir á Hólmsheiðarsvæðinu - MBL.IS
Alþingi samþykkti í dag að koma á fót nýrri stofnun með öryggisgæslustað fyrir 16 einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri þjónustu að halda og ekki er tali...
Why political candidates dress up and run in major UK elections
📅 19.06.2026 👁️ 1
Why political candidates dress up and run in major UK elections
Andy Burnham - a man who hopes to be the next prime minister - stood shoulder-to-shoulder with a man in a fox costume and an "intergalactic space warr...
Why political candidates dress up to run in major UK elections
📅 19.06.2026 👁️ 2
Why political candidates dress up to run in major UK elections
Andy Burnham - a man who hopes to be the next prime minister - stood shoulder-to-shoulder with a man in a fox costume and an "intergalactic space warr...
UK weather: Brief relief on Saturday before 35C heat returns
📅 19.06.2026 👁️ 2
UK weather: Brief relief on Saturday before 35C heat returns
After a slightly cooler Saturday, temperatures will rise again, possibly touching 35C by Tuesday with a Met Office amber extreme heat warning set to c...
Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo - Vísir
Viðbragðsaðilar voru ræstir út að Molde í vestanverðum Noregi í kvöld vegna tilkynningar um vinnuslys. „Tveir eru slasaðir, annar er í alvarlegu ástan...
„Höfum lært af síðasta þingvetri“
📅 19.06.2026 👁️ 2
„Höfum lært af síðasta þingvetri“
Alþingi hefur lokið störfum þennan veturinn en þingfundi var slitið á fimmta tímanum í dag. Fundum hefur verið frestað til 8. september. Af 188 frumvö...
Afnámi stimpilgjaldsins hafnað á Alþingi - MBL.IS
📅 19.06.2026 👁️ 2
Afnámi stimpilgjaldsins hafnað á Alþingi - MBL.IS
Frumvarp sjálfstæðismanna um afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði var fellt á Alþingi í dag. Sjálfstæðismenn hafa lagt frumvar...
Driver dead and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
📅 19.06.2026 👁️ 2
Driver dead and 33 passengers seriously injured in Bedford train collision
A train driver has died and 89 people have been injured after two trains collided in the Bedford area as police declare a major incident.Eleven people...
Einn látinn eftir lestarslys á Englandi
📅 19.06.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir lestarslys á Englandi
Einn er látinn og áttatíu og níu eru særðir, þar af ellefu alvarlega, eftir að tvær lestir skullu saman á Englandi á fimmta tímanum að íslenskum tíma ...
Lögreglan segir strangar öryggisreglur á Þingvöllum sjálfsagðar
📅 19.06.2026 👁️ 2
Lögreglan segir strangar öryggisreglur á Þingvöllum sjálfsagðar
Lokaundirbúningur fyrir tónleikahátíðina Bergmál, sem fer fram á Þingvöllum á morgun, er í fullum gangi. Um hundrað manns hafa komið að undirbúningi a...
Undrast „leiðin­lega“ Ís­lendinga - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
Undrast „leiðin­lega“ Ís­lendinga - Vísir
Umboðsmaðurinn Máni Pétursson, framkvæmdastjóri Paxal, leggur orð í belg með færslu á Facebook þar sem hann vill meina að umræðan sé ósanngjörn og í r...
Upplifðu mikla athygli og áreitni á hátindi frægðarinnar: „Við þurftum að vera með leyninúmer. Það var hringt allan sólarhringinn“
📅 19.06.2026 👁️ 2
Upplifðu mikla athygli og áreitni á hátindi frægðarinnar: „Við þurftum að vera með leyninúmer. Það var hringt allan sólarhringinn“
Greifarnir fagna um þessar mundir 40 ára afmæli hljómsveitarinnar og ætla meðal annars að rifja upp gömlu sveitaballastemninguna með tónleikaferðalagi...
Passengers describe how Bedford train crash unfolded
📅 19.06.2026 👁️ 2
Passengers describe how Bedford train crash unfolded
Passengers onboard two trains that collided near Bedford on Friday afternoon have told the BBC of the panic and injuries they witnessed in the afterma...
Bedford train crash passengers describe how collision unfolded
📅 19.06.2026 👁️ 1
Bedford train crash passengers describe how collision unfolded
Passengers onboard two trains that collided near Bedford on Friday afternoon have told the BBC of the panic and injuries they witnessed in the afterma...
James Burrows látinn - Vísir
📅 19.06.2026 👁️ 2
James Burrows látinn - Vísir
Umboðsmaður hans, Rick Rosen, staðfestir andlátið við New York Times en dánarorsökin hefur ekki verið tekin fram. James „Jim“ Burrows hefur verið titl...