Eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi á Klapparstíg norðan við Laugaveg í morgun. Slökkviliði barst tilkynning um eldinn klukkan sex.
Björn Ingi Guðjónsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir slökkvistarf hafa gengið vel. Talsvert tjón sé á íbúðinni vegna reyks.
Hann segir eldinn hafa verið staðbundinn við eldhús en enginn hafi verið í íbúðinni. Lögregla rannsaki upptök eldsins. Ekki sé tjón á öðrum íbúðum í húsinu og íbúar þeirra hafi getað snúið aftur í sínar íbúðir að slökkvistarfi loknu.
Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til athugunar vegna gruns um reykeitrun.