Þrír af hættulegustu föngum Bretlands hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn eftir að hafa ráðist inn í klefa barnamorðingja og stungið hann til bana í skipulagðri árás sem stóð yfir í um fimm mínútur.
Kyle Bevan, 33 ára, var að afplána lífstíðardóm fyrir morðið á tveggja ára stjúpdóttur sinni, Lola James, þegar þrír samfangar réðust á hann í HMP Wakefield fangelsinu sem er eitt rammgerðasta fangelsi Bretlands. Atvikið átti sér stað í nóvember á síðasta ári. Að árásinni stóðu Mark Fellows, Lee Newell og David Taylor, sem allir höfðu áður verið dæmdir fyrir morð. Mark Fellows gengur undir nafninu ‘Wakefield Dexter’ vegna tilhneigingar hans til að ráðast á og myrða aðra glæpamenn.
Stunginn meira en 25 sinnum
Samkvæmt dómi var Bevan stunginn og skorinn meira en 25 sinnum með heimatilbúnum vopnum. Eftir árásina komu mennirnir líkinu fyrir í rúminu þannig að svo virtist sem hann væri sofandi. Á myndbandsupptökum úr fangelsinu sjást þeir hlæjandi og spjallandi áður en þeir gengu inn í klefa hans.
Bevan var talinn sérstaklega berskjaldaður fangi vegna glæpsins sem hann hafði framið og yfirgaf sjaldan klefa sinn. Hann hafði verið dæmdur fyrir að hafa veitt tveggja ára stúlku yfir hundrað áverka áður en höfuðáverki dró hana til dauða.

Allir munu eyða ævinni í fangelsi
Fellows og Newell voru þegar að afplána lífstíðardóma án möguleika á lausn vegna fyrri tvöfaldra morða þegar árásin átti sér stað. Taylor var á gæsluvarðhaldi vegna annars morðs og játaði einnig þann glæp síðar. Dómari dæmdi þá alla aftur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.




Mikil spenna milli hópa fanga
Fyrir dómi kom fram að í fangelsinu ríki mikil spenna milli almennra fanga og þeirra sem afplána dóma fyrir brot gegn börnum eða kynferðisbrot. Þar hafi myndast eins konar stéttaskipting meðal fanga þar sem barnamorðingjar og barnaníðingar séu sérlega illa liðnir. Saksóknarar sögðu árásina hafa verið skipulagða fyrirfram.
NEW: Three inmates sentenced to life in prison for murdering a child killer in prison by stabbing him 25 times.
Kyle Bevan was stabbed to death by Mark Fellows, 45, David Taylor, 64, and Lee Newell, 57.
Bevan, 33, was in the UK prison, serving a life sentence for murdering his… pic.twitter.com/UoqAJJlMts
— Collin Rugg (@CollinRugg) June 19, 2026