Angel Aguirre, fyrrverandi ríkisstjóri Guerrero-ríkis í Mexíkó, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa átt við sönnunargögn tengd rannsókn á hvarfi 43 háskólastúdenta þar fyrir tólf árum.
Saksóknari segir að ríkisstjórinn hafi fyrirskipað bæði hátt- og lægrasettum embættismönnum að fela gögnin, sem voru hljóðupptökur.
Slík yfirhylming sé langt í frá einsdæmi heldur hluti víðtækrar spillingar meðal leiðtoga Guerrero-ríkis. Aguirre lét sjálfviljugur af embætti 2014 og hefur ekki sinnt opinberu embætti síðan.
Fulltrúar héraðslögreglu höfðu í september 2014 afskipti af stúdentunum í bænum Iguala eftir að þeir tóku þátt í mótmælum í höfuðborginni gegn stefnu menntamálayfirvalda í ríkinu.
Talið er að minnst sex þeirra hafi fallið í skotbardaga en 43 hurfu sporlaust. Grunur hefur lengi leikið á að lögreglumenn hafi starfað með eiturlyfjagengi sem rændi hópnum, jafnvel fyrir misskilning.
Líkamsleifar þriggja hafa fundist en örlög hinna eru enn óljós þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir.
Foreldrar nemendanna hafa löngum sakað herinn um aðild að hvarfinu. Tugir hafa verið handteknir vegna málsins, þeirra á meðal margir embættismenn. Claudia Sheinbaum forseti hefur heitið því að finna stúdentana og koma lögum yfir hina seku.