Ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar í Brotkasti um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, þar sem hann hæðist að Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, með rökum sem enga skoðun þola, hafa verið harðlega gagnrýnd. DV hefur birt tímalínu sem dregur vissan dár að ummælum forsetans fyrrverandi.Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðiprófessor við HÍ; tók málið upp á Facebook og bætti við þáttum sem ekki voru nefndir í tímalínu DV en skipta vissulega máli.
Sigurður Gylfi Magnússon: Ólafur reið með björgum fram, villir hann, stillir hann!