Það er ekki óvanalegt að það gangi á ýmsu bak við tjöldin í stjórnmálum. Eðli Flokks fólksins kom hins vegar skýrt fram í skilaboðum sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra og þingmanns Flokks fólksins, sendi honum, að mati prófessors í stjórnmálafræði.
Fréttastofa hefur skilaboðin undir höndum. Í þeim þrýstir Guðbjörg á Guðmund Inga að tilkynna um afsögn sína sem ráðherra þegar hann er nýútskrifaður af sjúkrahúsi. Þá hafði þegar verið ákveðið að Guðmundur skyldi láta af embætti, þvert á hans vilja.
Guðbjörg segir Guðmundi Inga að tveir kostir séu í stöðunni fyrir hann að tilkynna um afsögn eftir veikindaleyfi – eða stríð.
„Þessi skilaboð virðast vera svolítið kaldranaleg“
„Þetta er nú allt svolítið svona hráslagalegt þarna hjá Flokki fólksins í þessu máli og að mörgu leyti má kannski segja að þetta sé nú flokkur af sérstakri gerð í íslenskum stjórnmálum. Þetta er áskorandaflokkur sem hefur ekki sömu sögulegu, faglegu innviði og kannski sumir aðrir flokkar,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.
Vegna þess hafi komið upp fleiri vandræðamál í kringum flokkinn en í öðrum flokkum þar sem ef til vill er faglegri, söguleg færni í stjórnmálum.
„Því stjórnmál eru jú líka fag sem fólk þarf að skólast til í. Þannig að þetta er svona dálítið sérstakt og þessi skilaboð virðast vera svolítið kaldranaleg.“
Eiríkur segir það ekki óvenjulegt í stjórnmálum. Þar gengur eitt og annað á bak við tjöldin sem aldrei kemur upp á yfirborðið, þar sem samskipti eru með kaldranalegri hætti en sjást opinberlega.
„Þarna sést samt þetta eðli Flokks fólksins. Það er ekki hin sama sögulega fagmennska og sums staðar annars staðar.“
Harla óvenjulegt að birta svona samskipti
Eiríkur segir óvanalegt að persónuleg samskipti ráðherra og aðstoðarmanna séu afhjúpuð með þessum hætti.
„Það er algjörlega óvanalegt. Auðvitað höfum við einstaka sinnum séð samskipti aðstoðarmanna koma upp á yfirborðið. En að sjá þessi samskipti svona, þar sem ráðherra virðist birta þau sjálfur, allavega er ekki hægt að lesa það öðruvísi en að þetta hafi komið frá ráðherranum sjálfum, það er harla óvenjulegt.“
Guðmundur Ingi heyrði fyrst af áformum um að Ragnar Þór Ingólfsson, eiginmaður Guðbjargar, tæki sæti í ríkisstjórninni í hans stað, í símtali við aðstoðarmann Ingu Sæland, degi áður en hann fékk skilaboðin. Hann kallar þetta óeðlileg afskipti.
„Það er kannski akkúrat þarna sem svona einhvers konar skortur á faglegri festu birtist hjá Flokki fólksins. Hann virðist erfa þennan aðstoðarmann frá fyrri ráðherra og velur ekki eigin pólitískan trúnaðarmann.“
Faglegt skipulag minna í Flokki fólksins en ákjósanlegt er
Eiríkur segir aðstoðarmenn ráðherra yfirleitt valda í gegnum pólitísk tengsl sem byggjast á viðamiklu skipulagi. Í slíkt starf velst yfirleitt pólitískur trúnaðarmaður sem tengist bæði viðkomandi ráðherra og flokki.
„Þarna er til dæmis ekki um slíkt að ræða og svo eru þarna augljós hagsmunatengsl, eða það sem virðast vera hagsmunatengsl öllu heldur, sem hafa áhrif á stöðu aðstoðarmannsins gagnvart ráðherra sínum og allt er það fremur óheppilegt.“
Eiríkur vísar þar til þess að aðstoðarmaðurinn er eiginkona Ragnars Þórs, sem átti að taka við sæti Guðmundar Inga í ríkisstjórn.
Hann segir að almennt sé það þannig innan stjórnmálaflokka að formaður leggi til við þingflokk hverjir skipi ráðherrastóla. Þingflokkurinn taki síðan ákvörðun um það. Þarna sé öðrum aðferðum beitt.
„Og það er miklu meiri losarabragur, að því er virðist, á þessu öllu saman heldur en ætti að vera, þar sem almennara, faglegra skipulag er í kringum starf stjórnmálaflokks. Þarna kemur í ljós að slíkt faglegt skipulag er miklu minna í Flokki fólksins heldur en kannski ákjósanlegt er.“
Eiríkur segir mikilvægt að skilja á milli þess hvort það séu faglegar og pólitískar ástæður fyrir því að skipta um ráðherra og aðferðarinnar sem farin er við það.
„Það er hún sem virkar svolítið kaldranaleg miðað við þessar aðstæður.“
Ekki samkvæmt íslenskri stjórnmálahefð
Í skilaboðum Guðbjargar kom fram að ákvörðunin væri alfarið Valkyrjanna, þvert á það sem Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur sagt.
Sérðu fram á að þetta hafi einhverjar afleiðingar fyrir ríkisstjórnina?
„Nú hefur það verið þannig í íslenskum samsteypustjórnum að stjórnmálaflokkarnir velja sína ráðherra hver fyrir sig. Það merkir að forystumenn annarra flokka eiga ekki að skipta sér af því hverjir veljast í ráðherrastóla fyrir samstarfsflokka sína.“
Eiríkur segir að í einstaka tilvikum hafi verið sameiginlegur skilningur á að tilteknir þingmenn séu ekki heppilegir í slíka ráðherrastóla.
„Svona ákvörðun á samkvæmt íslenskri stjórnmálahefð að ráðast hjá þingflokki viðkomandi flokks samkvæmt leiðsögn og tillögu formanns. Það er ekkert formlegt sem segir að svo verði að vera en þannig hefur hefðin verið.“