Tré féll í miðborg Reykjavíkur í dag og olli tjóni á tveimur bílum. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að illviðri hafi orðið til þess að tréð féll.
Þegar lögreglumenn komu á staðinn þveraði tréð veginn. Haft var samband við eigendur bílanna og tréð var fjarlægt.