Boðað hefur verið til mótmæla við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í dag vegna komu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Hann heldur ræðu á allsherjarþinginu síðar í dag.
Ræðu Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, var varpað á skjá fyrr í dag en hann fékk ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og gat því ekki ávarpað þingið í eigin persónu. Í ræðu sinni sagði Abbas að fjölgun landránsbyggða Ísraela á Vesturbakkanum og Austur-Jerúsalem ógni ekki aðeins tveggja ríkja lausninni heldur tilvist palestínsku þjóðarinnar.
Ræða forsætisráðherra Ísraels er á dagskrá um klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma.