Lögreglan handtók 17 í tengslum við rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Sex sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins þar til á morgun. Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir en mbl greindi fyrst frá. Hún segir rannsóknina flókna og viðamikla.
„Þetta er rannsókn sem hefur staðið yfir í einhvern tíma og fléttast mögulega inn í aðra rannsókn,“ segir Elín Agnes en aðspurð vildi hún ekki tjá sig um hvaða rannsókn væri átt við.
Fréttastofa greindi frá því á þriðjudaginn að lögregla hefði ráðist í samhæfðar aðgerðir og handtekið nokkurn fjölda fólks.
Á meðal hinna handteknu hafi verið þekktir brotamenn. Einn þeirra er Atli Freyr Fjölnisson, sem þegar situr í varðhaldi vegna aðildar að Straumsvíkursmyglinu, stærsta kókaínsmygli Íslandssögunnar, í sumar og var hann handtekinn á Litla-Hrauni.
Þá var starfsmaður bílasölunnar BL einnig handtekinn, en forstjóri fyrirtækisins hefur lýst því yfir að fyrirtækið eigi enga aðkomu að málinu.