Laxveiði gekk talsvert betur í ár en í fyrra, sér í lagi á Vesturlandi. Í stærstu ánni veiddust um þúsund fleiri laxar en síðasta sumar.
Laxveiðin gleðst yfir blautu sumri
„Í fyrra var eitt versta laxveiðisumar sem mælingar ná yfir þannig að sem betur fer var sumarið í ár heilt yfir mjög gott, sérstaklega á Vesturlandi,“ segir Jóhann Helgi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga.
Aðspurður segir Jóhann í raun hvorki mikið vitað um hvað olli slöku veiðisumri í fyrra né hvað hafi lagast í ár. Sumarið í fyrra var þó þurrt en meira rigndi í ár. Það hugnist laxveiðimönnum betur. Göngur hafi þó farið rólega af stað, sums staðar um tveimur vikum á eftir því sem gengur og gerist.
Þverá/Kjarará trónir á toppnum
Landssamband veiðifélaga tekur saman tölur yfir fjölda laxa sem veiddust í helstu laxveiðiám landsins. Meira en helmingur villtra laxa veiddist í ám á Vesturlandi og Vestfjörðum í sumar.
Þar trónir hæst Þverá/Kjarará í Borgarfirði. Þrátt fyrir nöfnin tvö er um eina á að ræða. Þar hafa veiðst 2.787 laxar, um þúsund fleiri en veiddust hörmungarsumarið í fyrra. Þetta er í raun mesti fjöldi sem hefur veiðst þar síðan 2013.
Af tölum Landssambandsins að dæma hafa aðeins veiðst fleiri laxar um fimm sumur síðan 1.974. Jóhann segir leigutakann og veiðifélagið hafa hlúð vel að ánni sem skili góðri fiskgengd og veiði.
Af tíu veiðihæstu ám landsins eru sex á Vesturlandi. „Borgarfjarðarárnar eru mjög ofarlega, flestar af þeim, og í Dölunum. Laxá í Dölum stóð sig gríðarlega vel,“ segir Jóhann. Laxá í Dölum var vatnsmikil allt sumarið og skilaði jafnri veiði yfir tímabilið. Þar veiddust 1.478 laxar.
Ágúst- og septemberveiði í Jöklu
„Önnur á sem er búin að standa sig virkilega vel er Jökla á Austurlandi, hún fór ekki á yfirfall þetta sumarið sem þýðir að það var hægt að veiða út tímabilið þetta árið, ólíkt fyrri árum.“
Yfirleitt hefur áin farið á yfirfall fyrri part ágúst. Þá fyllist áin af gruggugu jökulvatni og ekkert veiðist nema í hliðarám. Í ár var veiðin í ágúst drjúg og hægt var að veiða í september líka. Það skilaði sér í gríðarlega góðri laxveiði.
Áhyggjur af ám í Húnavatnssýslu
Á Norðvesturlandi skaraði Miðfjarðará fram úr með 1.748 veidda laxa, um 500 fleiri en í fyrra. Blanda bætti sig líka talsvert, með 460 laxa á móti 54 veiddum í fyrra.
„Svo hefur maður miklar áhyggjur af ánum í Húnavatnssýslunni, Víðidalsá, Vatnsdalsá og Laxá í Ásum,“ segir Jóhann.
Þar hafa færri laxar skilað sér í árnar úr hafi en búast mætti við miðað við fjölda seiða. Jóhann segir ýmsar kenningar, svo sem afrán í Hópinu og för laxanna fram hjá sjókvíaeldi á Vestfjörðum þar sem laxalús hefur þekkst. Í raun sé ástæðan ekki þekkt.
Rannsóknir skorti á vist laxa í hafi
„Allar rannsóknir sem tengjast för laxa í hafi eru í skötulíki,“ segir Jóhann. Veiðimenn bundu vonir við auknar rannsóknir á för og afdrifum laxa í hafi þegar Veiðimálastofnun sameinaðist Hafrannsóknastofnun en Jóhann segir lítið hafa breyst.
„Það er bara svarthol, við vitum í raun og veru ekki neitt hvað er að gerast þar.“
Norðausturland undir pari
Í Laxá í Aðaldal var veiðin tvöföld á við síðasta sumar. Jóhann segir að starfið sem unnið hafi verið við ána skili sér, verið sé að styrkja hrygningarstofninn og vinna gegn áhrifum virkjunarinnar.
Heilt yfir er Norðausturland þó undir pari. Jóhann segir það oft vilja svo til að Norðausturlandið sé um ári á eftir, bæði í uppsveiflu og niðursveiflum.
Villtu árnar á Suðurlandi í vexti
Á Suðurlandi stóð Stóra-Laxá sig mjög vel. Þar var veiðin með því mesta sem hefur verið í þeirri á. Jóhann eignar það umsjóninni með ánni og umhverfi hennar, auk þess sem sleppingar gætu verið að skila sér.
Í Rangá ytri og Rangá eystri veiddist gríðarlegt magn af laxi, yfir 4.000 í hvorri. Þar er hins vegar ekki villtur stofn því árnar eru of kaldar. Þess í stað er seiðum sleppt í árnar.
Hann hafði ekki fengið tölur úr Soginu enn en segir veiðimenn láta vel af veiðinni. Í Elliðaánum veiddust um 100 fleiri laxar en í fyrra. Laxateljarar benda þó til þess að talsvert sé af laxi í ánni, milli 4.000 og 4.500.