Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti og umfjöllun RÚV þess efnis voru í brennidepli í upphafi óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi í dag. Fyrr í dag var greint frá afarkostum sem Guðmundi voru settir þegar hann var í veikindaleyfi.
Guðrún Hafsteinsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins beindi spjótunum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formanni Flokks fólksins, í óundirbúnum fyrirspurnum og krafði Ingu um skýringar á málinu.
Inga sagðist ekki ætla að ræða opinberlega málefni Guðmundar Inga en sagði að henni þætti leitt að hún og Guðmundur Ingi upplifðu samtöl þeirra með ólíkum hætti.
Guðmundur Ingi var í þingsal og hristi höfuðið meðan hann hlustaði á Ingu ávarpa þingið.