Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að framganga Ingu Sæland í þingsal hafi ekki komið henni á óvart, enda komi henni orðið fátt á óvart hvað viðkemur Flokki fólksins. Ingu sé frjálst að vera hvöss í svörum en hún sé ráðherra sem verði að svara fyrir ákvarðanir sínar og gera það heiðarlega. Þetta kemur fram í færslu Guðrúnar á Facebook þar sem hún bregst við reiðilestri sem hún fékk frá Ingu á Alþingi í dag.
Segir viðbrögð Ingu ekki koma á óvart og krefst áfram svara - „Þetta hefur ekkert með „upplifun“ að gera“