Gheorghe Mihai Cacaliceanu, talsmaður Wolt-sendla, segir fund þeirra með forsvarsmönnum fyrirtækisins hafa gengið vel í dag. Fundurinn hófst klukkan 13:00 og átti upphaflega að vera klukkustundarlangur en honum lauk um þrjúleytið.
Wolt-sendlar skipta hundruðum á Íslandi en 16. september lagði hópur þeirra niður störf til að mótmæla skertum kjörum. Cacaliceanu reiknast til að laun sendlanna hafi lækkað sem nemur um 40% á þremur mánuðum.
„Stjórnendateymið hjá Wolt sýndi ástandinu skilning og þeim stendur ekki á sama um stöðuna,“ segir Cacaliceanu í samtali við fréttastofu.
Misræmi í birtingu greiðslna vegna tæknivandamáls
Samkvæmt Cacaliceanu segir Wolt að um misskilning sé að ræða. Fyrirtækið rekur vandamálið að hluta til tæknihnökra sem hafi orðið við uppfærslu á kerfi Wolt. Það hafi leitt til þess að misræmis gætti í birtingu greiðslna.
„Við ætlum að leyfa þeim að njóta vafans,“ segir Cacaliceanu og bætir við að ef starfsmenn fyrirtækisins hafi ekki vitað af greiðslumisræminu áður, þá viti þeir að minnsta kosti af því núna.
„Þeir segjast ætla að gera eitthvað í þessu en að það muni taka tíma,“ útskýrir Cacaliceanu enn fremur og segir að það gæti tekið á bilinu fjórar til sex vikur, samkvæmt niðurstöðu fundarins.
Spurður hvort þeim verði greidd laun afturvirkt segir Cacaliceanu það ekki standa til þar sem hluti vandans hafi einnig falist í að of margir bílstjórar hafi verið ráðnir miðað við verkefnastöðu.
Christian Kamhaug, samskiptastjóri Wolt á Íslandi og í Noregi, sagði í samtali við fréttastofu fyrir fundinn að sendlar væru mikilvægustu samstarfsaðilar Wolt. Án þeirra væri ekkert fyrirtæki og væru athugasemdir þeirra því teknar alvarlega.