Persónuvernd hefur sent frá sér niðurstöður frumkvæðisathugunar á vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun á bílastæðum fimm innanlandsflugvalla, sem allir eru reknir af dótturfélagi Isavia, Isavia innanlandsflugvöllum ehf. Segir Persónuvernd að á þremur flugvallanna hafi merkingar og fræðsla um rafræna vöktun á bílastæðum ekki verið samkvæmt lögum. Í kjölfarið voru hins vegar gerðar úrbætur og félagið er ekki lengur brotlegt.
Isavia fór ekki að lögum á þremur bílastæðum