Fjölmiðlunum þremur sem Bandaríkjaforseti úthýsti hefur verið hleypt inn í Hvíta húsið á ný. Þeim var vísað frá í morgun þvert á bráðabirgðaúrskurð dómstóls í Washington D.C.
Á föstudag tilkynnti Donald Trump forseti Bandaríkjanna bannið og fjölmiðlarnir þrír höfðuðu mál í kjölfarið. Trump sagðist vilja banna þá frá Hvíta húsinu því þeir segðu falsfréttir.
Bráðabirgðaniðurstaða dómstólsins kveður á um að miðlarnir skuli fá aðgang að Hvíta húsinu í 14 daga þar sem aðgerð Bandaríkjaforseta brjóti líklega gegn stjórnarskrá.
Það hefur verið mikið um að vera í Hvíta húsinu í dag. Trump tók á móti Xi Jinping, forseta Kína, í morgun og áttu þeir fund sem var lokaður fjölmiðlum. Þeir ræddu við fjölmiðla fyrir fundinn og Xi sagði meðal annars að tryggja þurfi að þróun gervigreindar verði ávallt undir stjórn manna.