Sveitarfélög vilja takmarka gjaldskrárhækkanir um áramótin til að vinna gegn verðbólgu. Miklar umræður sköpuðust í gærkvöld á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fer á Akureyri. Þá lögðu fulltrúar Árborgar og Kópavogs fram þá tillögu að sveitarfélög myndu ekki hækka gjaldskrár á barnafjölskyldur um meira en 2,5% um næstu áramót til að leggja sitt af mörkum til lækkunar verðbólgu og vaxta í landinu.
Sumir fulltrúar vildu ganga enn lengra og ekki takmarka gjaldskrárhækkanir við barnafjölskyldur. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg, segir lykilatriði að allir leggist á eitt og sveitarfélögin séu klár. Ekkert formlegt samtal hafi þó verið við ríkisstjórnina um málið.
„Þannig og með þeirri von að ríkið væri tilbúið að koma að verkefninu með okkur, ríkisstofnanir og einkafyrirtækin í landinu. Atvinnulífið og vinnumarkaðurinn. Því ef við náum þessu saman getur þetta raunverulega haft áhrif,“ segir Bragi.
Telja enga gjá vera að myndast milli ríkis og sveitarfélaga
Lykilatriði, að mati fulltrúa sveitarfélaganna, er að ríkið leggi einnig sitt af mörkum. Sjálfstæðisflokkurinn á flesta fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu en situr ekki í ríkisstjórn.
Að mati Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi, er engin gjá að myndast milli ríkis og sveitarfélaga sökum þess. Hún telur þó að samráð milli ríkis og sveitarstjórna hefði mátt vera töluvert meira við gerð fjárlagafrumvarpsins.
Nánar er rætt við Ásdísi hér í spilaranum að neðan.