Þetta staðfestir Anca Elena Cristea, yfirlandvörður í Landmannalaugum, í samtali við fréttastofu. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Starfsmaður Vegagerðarinnar er mættur á svæðið til að ryðja veginn samkvæmt upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. Hann segir starfsmann á traktorsgröfu vinna að því að hreinsa veginn. Sjö bílar séu þar fyrir innan.
Anca segir að tvær skriður hafi fallið með stuttu millibili eftir hádegi við Landmannalaugar. Fyrri skriðan féll á bílastæðið og var samsett af grjóti og möl. Stærri aurskriða féll svo skömmu síðar um 15 metrum frá bílastæðinu. Aurskriðan þveraði veginn og er eins og stendur óökufært um hann.
Lítil rúta lagði af stað rétt áður en aurskriðan féll og var hún aðeins nokkrum metrum frá því þar sem að skriðan kom niður. Litlu munaði að illa hefði farið en við hlið vegarins er fljót sem rútan hefði að öllum líkindum endað í ef hún hefði orðið fyrir skriðunni.
Um 30 manns eru innlyksa í Landmannalaugum en Anca segir að engan hafi sakað.
Fréttin verður uppfærð.