Íslensk málnefnd kallar eftir vitundarvakningu um mikilvægi þess að samskipti við börn fari í meiri mæli fram á mæltu máli og augliti til auglitis. Þörf sé á því til að efla málskilning þeirra, vekja samkennd og auka færni í daglegu lífi.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem nefndin hefur sent frá sér.
Í ályktuninni er bent á að flestir Íslendingar séu reglulega með snjalltæki við hönd og vegna þessa hafi dregið úr venjulegum samskiptum á móðurmáli barna.
Börn sem enn þá séu að tileinka sér tungumálið eyði drjúgum tíma í tölvuleikjum þar sem samskiptin fara fram á ensku og það hafi skaðleg áhrif á málþroska þeirra.
Fullorðið fólk sé síst góðar fyrirmyndir því það eyði sjálft drjúgum tíma fyrir framan skjáinn, jafnvel á kostnað beinna samskipta við börn.
Stjórnvöld þurfa að gera betur
Íslensk málnefnd segir í ályktun sinni að stjórnvöld þurfi að gera betur við að beita opinberu regluverki í þágu íslenskunnar. Þá þurfi lagasetning um gervigreind að taka sérstakt mið af þeirri staðreynd að tungumálið standi höllum fæti.
Nefndin kallar eftir því í ályktun sinni að stjórnvöld grípi til aðgerða, styrki nýjar máltæknilausnir og efli framleiðslu og aðgengi að afþreyingar- og fræðsluefni fyrir ungmenni á íslensku. Þá sé brýn þörf á að íslenskt viðmót í snjalltækjum sé tryggt.
Segir enn fremur að veruleg þörf sé á að hvetja til vitundarvakningar um menningarlegt mikilvægi tungunnar og efla kennslu á öllum skólastigum.