Það er ekki hlaupið að því fyrir vestræna fréttamenn að komast til Rússlands eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Bæði er það vegna viðskiptaþvingana Vesturlanda og þeirra skorða sem Rússar sjálfir setja fjölmiðlum og fjarskiptum. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV fékk engu að síður vegabréfsáritun til að fylgjast með nýafstöðnum þingkosningum í Moskvu. Umsókn Jóns og svissnesks kollega hans var marga mánuði hjá rússneskum yfirvöldum og reyndar var komið viku fram yfir flugið sem var bókað þegar loks fékkst jákvætt svar degi fyrir kosningarnar.
En það er ekki einfalt að koma sér til Rússlands. Flug og samgöngur frá Vesturlöndum eru bannaðar. Tyrkir fljúga þangað enn og svo er hægt að fara um Serbíu, Armeníu eða Úsbekistan. Jón fór um Istanbúl og slapp inn milli drónaárása Úkraínumanna. En þótt til Moskvu væri komið var björninn ekki unninn. Á flugvellinum tóku við yfirheyrslur heila nótt og rýnt í símann, myndir og skilaboð.
Ferðast með óstimplað og óspjallað vegabréf
Jón telur að menn í Rússlandi viti hvert leið hans hefur legið en segist alltaf taka með sér óspjallað og óstimplað vegabréf þegar hann fer í svona ferð. Ekki sé gott að segja hvort tilgangur yfirheyrslnanna hafi verið að bera saman orð hans við upplýsingar sem menn höfðu þegar eða fá upplýsingar um vígvöllinn í Úkraínu en þangað hefur hann farið sem fréttamaður eða jafnvel að hræða hann og kollegann svo þau héldu sig á mottunni þegar inn í Rússland væri komið. Fleiri fengu svona móttökur segir Jón sem reyndi að sjá hvort eitthvað væri sameiginlegt með þeim sem voru pikkaðir út og settir á grillið. Helst hefði það þá verið að þar færu Rússar sem hafa fjölskyldutengsl við Úkraínu eða erlendir ríkisborgarar sem væru af rússneskum uppruna og þyrftu að skýra af hverju þeir hefðu flúið sæluríkið Rússland.
Vestrænn ferðamaður sést varla í Moskvu
Eftir heila nótt á vellinum var þeim hleypt loks inn í landið án skýringa eða skilyrða. Jón segir að þetta sé kannski ekki verra en geti gerst á flugvelli í New York og hann hafi ekki lent í slíku áður í Rússlandi, þótt hann sé hugsanlega að spilla fyrir næstu vegabréfsáritun með spjallinu í Speglinum. Hann heldur að það sé auðveldara fyrir ferðamenn að fá leyfi til að fara til Sankti Pétursborgar en Moskvu. Þar eru nær engir vestrænir ferðamenn en töluvert um Araba og Kínverja og þar hafi Rússar greinilega verið í markaðssókn.
Látin afskiptalaus þegar inn var komið
Reynsla Jóns er sú að því erfiðara sem er að komast inn í búrið eins og hann segir því auðveldara sé að athafna sig inni í því og þannig var því farið í Moskvu. Hann segir að það sé reyndar alltaf að verða erfiðara að taka fram myndavél á götu án þess að koma sér í vandræði, sá hringur sé alltaf að þrengjast en í þessari ferð voru þau alveg látin í friði. Rússar setji miklu meiri hömlur á það sem sagt er og skrifað innanlands en á fréttir sem sagðar eru í útlöndum þeir séu nær ónæmir fyrir þeim.
Vestrænar vörur í úrvali
Raðir séu við búðir og fólk bíði eftir matardreifingu en þær raðir hafi líka verið í Rússlandi fyrir innrásina í Úkraínu. Jóni sýndust vestrænar vörur vera til staðar í úrvali,hvort sem það var kók, Haribo, franskur ostur eða Nike-skór. Stóru vestrænu keðjurnar eru margar horfnar, eins og Apple-búðin og McDonalds en Burger King er enn í Moskvu.
Stétt manna og kvenna hefur atvinnu af því að taka á móti innkaupalistum og skjótast eftir því sem kaupandinn vill segir Jón, Rússar séu aldir upp við tvöfalt hagkerfi og með reddingar í genunum. Verðið hefur hækkað mikið þótt framboðið sé nægt, rúblan hefur misst um þriðjung af verðgildi sínu frá því að innrásin hófst.
Bensínlítrinn ódýr en skortur á bensíni
Bensín kostar ekki nema um hundrað krónur lítrinn enda eru Rússar ekki háðir heimsmarkaðsverði og Hormússundi, en það er samt skortur á bensíni. Margar bensínstöðvar eru lokaðar og langar biðraðir við aðrar. Það orsakast af tjóni sem Úkraínumenn hafa unnið á olíuhreinistöðvum í landinu. Jón segir að einn og einn bílstjóri renni svo fram fyrir röðina og dragi upp embættispassann, sumir séu jafnari en aðrir.
Sumt breytist - annað ekki
Það er ekki lengur babúska á hverri hæð hótela sem skráir hverjir koma og fara en þegar Jón fór með kollega sínum í stórt fjölbýlishús var þar kona sem skrifaði niður heimsóknina í stóra bók. Tanía eldri kona sem hann ræddi við kvartaði undan því að nú þyrfti hún að fara á milli búða en í Sovétríkjunum hefði slíkt vesen verið óþarfi, þá var allt á sama verði.
Síminn virkar en netið ekki
Miklar takmarkanir eru á netinu í Rússlandi og viðbrigði fyrir vestrænan fréttamann að geta ekki komist inn á Youtube, Instagram og WhatsApp og GPS-staðsetningarkerfið virkar ekki. Jón átti í vandræðum með erlent símkort fyrsta sólarhringinn eftir komu til Moskvu en það komst svo í lag. Samtalið við hann í Speglinum var tekið í síma. Erfitt er líka að geta ekki notað vestræn greiðslukort sem virka ekki vegna viðskiptabannsins. Hvorki er hægt að versla fyrir evrur né dollara í Rússlandi og því vissara að hafa vel af rúblum með sér ef ferðast er þangað segir Jón.
Yfirbragð Moskvu er vestrænt
Vladímír Pútín forseti Rússlands hefur verið gagnrýninn á vestræn gildi og siðmenningu og því skýtur svolítið skökku við að Jón segist varla hafa komið til vestrænni borgar en Moskvu. Það sé mjög rússneskt að sýna ríkidæmi sitt og mikið um vestræna glæsibíla sem ekið er á ofsahraða um göturnar. Stríðið gegn vestrinu telur Jón að snúist minna um stríð gegn vestrænum gildum en stórveldisnostalgíu eða jafnvel afbrýðisemi þegar sú fyrrverandi, sú úkraínska sé horfin í faðm nýs elskhuga.