Að því er kemur fram á upplýsingasíðu Veðurstofunnar gilda viðvaranirnar ýmist fram á föstudag eða laugardag eftir svæðum.
Talsvert hefur rignt víða á landinu og spár gera ráð fyrir mikilli úrkomu allt fram á sunnudag. Úrkoman breytist í snjókomu til fjalla en óvissa er um úrkomuform neðar í hlíðum og þar með hvar snjólínan muni liggja.
Búast megi við vatnavöxtum í ám og lækjum. Yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður geti átt sér stað skyndilega.
Veðurstofan biðlar til fólks að forðast að staldra við undir bröttum hlíðum og sýna sérstaka aðgát á vegum.