„Alþjóðapólitísk áhætta er mikil og horfur í efnahagsmálum á heimsvísu eru óvissar,“ segir í Fjármálastöðugleika, nýjasta riti Seðlabanka Íslands. Þegar horft er í gegnum stofnanamálið gæti Seðlabankinn allt eins verið að segja okkur að það séu krísur víða og það þurfi rosalega lítið til að heimshagkerfið fari á hliðina.
Þess vegna lá beint við að spyrja Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, hvort bankinn væri í raun að vara við mögulegri eða yfirvofandi heimskreppu. „Við göngum ekki svo langt en það eru að verða einhverjar grundvallarbreytingar á vöxtum sem geta haft áhrif á til dæmis þessa miklu uppbyggingu gervigreindar í Bandaríkjunum. Ef væntingar um það breytast getur það haft áhrif á fjármálamarkaði.“ Þetta svar krefst nánari túlkunar.
Þarna vísar Tómas í þróun á þróunina á skuldabréfamörkuðum, einkum á ríkisskuldabréfum. Í gær fór krafa á tíu ára bandarískt ríkisskuldabréf vel upp fyrir 5 prósent. Krafan á 30 ára skuldabréf er vel yfir 5 prósenta þröskuldnum. Wall Street Journal lýsti ástandinu í gær sem „hinum fullkomna stormi“.
Þetta á ekki aðeins við um bandarísk skuldabréf. Kröfur á bresk, frönsk og þýsk ríkisskuldabréf hafa einnig hækkað skarpt. Meira að segja kröfur á japönsk skuldabréf, sem hafa verið holdgervingur stöðugleikans, hafa hækkað og ekki verið hærri í 30 ár.
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og doktor í hagfræði, segir stöðuna afar óvenjulega. Svo óvenjulega raunar að hann tók þróunina upp á ríkisstjórnarfundi í vikunni. „Yfirleitt hefur það verið þannig að þegar það gengur vel í heiminum þá lækkar ávöxtunarkrafa bandarískra skuldabréfa. Þegar það gengur illa í heiminum þá lækkar hún líka því þá flýja allir inn í bandarísk skuldabréf. Það hefur ekki gerst núna. Hún hefur verið að hækka.“
Skýringarnar eru vafalaust margþættar og mismunandi eftir löndum en samnefnarinn liggur í áhyggjum af aukinni skuldsetningu ríkja. Nýverið var greint frá því að skuldir bandaríska ríkisins væru komnar upp í 40 billjónir dollara. Iðulega hafa skuldir Bandaríkjanna ekki verið höfuðverkur fyrir fjárfesta en viðbrögð núverandi stjórnvalda valda áhyggjum. Fjárlagahallinn í ár er sex prósent af landsframleiðslu sem er það mesta á hagvaxtartímum. Þannig að fjárfestar eru að gera kröfu um ríkulega ávöxtun ef þeir á annað borð eru að kaupa bandarísk skuldabréf.
Olíukrísan olía á eldinn
Áhyggjur fjárfesta liggja þó víðar. Allt frá því Bandaríkin og Ísrael hófu að gera árásir á Íran í lok febrúar hefur verið olíukrísa. Írar brugðust, fyrirsjáanlega, við með að taka stjórn á og draga úr flutningum á Hormússundi, en fimmtungur af olíu heimsins var fluttur þar í gegn. Verð á olíutunnuna rauk upp í 112 dollara en lækkaði jafnt og þétt eftir því sem leið á sumarið. „Menn hafa verið að leita logandi ljósi að ástæðum fyrir af hverju ástandið varð ekki miklu verra. Að hluta til skýrist það af ákveðinni forsjálni hjá Kínverjum sem voru búnir að birgja sig mjög vel upp. Það er líka þannig að með uppgangi sólarorku í heiminum er kominn valkostur við olíu, sérstaklega fyrir fátækari ríkin, sem gerir það að verkum að alheimshagkerfið virðist ekki jafn viðkvæmt fyrir olíuverði og oft áður,“ segir Daði Már.
Verðið rauk þó aftur upp þegar Hútar náðu stjórn á mikilvægum svæðum við Rauðahaf og náðu að takmarka umferð olíuskipa þar verulega. Mörg ríki, til að mynda Bandaríkin, hófu í vor að ganga á neyðarbirgðir sínar af olíu til að koma í veg fyrir enn frekari verðhækkanir en víða er farið að ganga vel á þær birgðir. „Við komum inn í þetta ár með ágætar birgðir af olíu og jarðgasi og við sjáum þessar birgðir vera að minnka þó nokkuð hratt. Við höfum áhyggjur af þróun á olíumörkuðum og ekki síst á framleiðslu á dísilolíu og flugvélaeldsneyti og það er hætt við því að það haldist hátt eitthvað áfram,“ segir Tómas.
Seðlabankar hækka vexti en Ásgeir vonar að nóg sé komið
Áhyggjur Tómasar af þessum tveimur tilteknu tegundum eldsneytis eru réttmætar því flestar aðfangakeðjur heims reiða sig á dísilolíu og að hluta til á flugvélaeldsneyti. Þegar það hækkar í verði hækkar vöruverð, sem leiðir af sér verðbólgu. Hærri verðbólga knýr seðlabanka heims til að hækka vexti, sem svo eykur kostnað heimila og fyrirtækja. Nokkuð sem við Íslendingar þekkjum allt of vel.
Bandaríski seðlabankinn og Evrópski seðlabankinn hafa á undanförnum vikum hækkað vexti og búist er við að fleiri fylgi í kjölfarið. Seðlabanki Íslands hækkaði vexti upp í 8 prósent í ágúst en Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagðist í gær vonast til þess að ekki þyrfti að koma til frekari hækkana.
Gervigreindin tröllríður öllu
Fyrir utan óútreiknanlega þjóðarleiðtoga liggur mesta óvissan um hvað gerist hjá gervigreindarfyrirtækjum. Þá erum við ekki að tala um þá staðreynd að raunverulegar áhyggjur eru af að gervigreindin gangi af mannkyninu dauðu í fyrirsjáanlegri framtíð. Bandarísk stórfyrirtæki hafa varið gríðarlegum fjármunum í að byggja gagnaver og aðra innviði til að knýja áfram framþróun gervigreindar.
Þrátt fyrir digra sjóði er uppbyggingin mjög skuldsett en margir fjárfestar hafa áhyggjur af því að væntar tekjur þessara fyrirtækja muni ekki réttlæta þessa miklu fjárfestingu. Þeir urðu heldur ekkert rólegri þegar forstjórar nokkurra gervigreindarfyrirtækja fóru að tala fyrir því að hægja þyrfti á framþróun tækninnar til að koma í veg fyrir mögulega útrýmingu mannkyns.
Wall Street Journal bendir á að uppbygging gervigreindarinnar sé stærsta veðmál í sögu Bandaríkjanna. Uppbygging tækninnar hafi kostað margfalt meira en önnur sambærileg innviðauppbygging. Þetta eru verkefni eins og lagning járnbrautanna og uppbygging fjarskiptakerfisins. Ef þetta veðmál klikkar gætu afleiðingarnar orðið geigvænlegar.
Höfum gert allt sem við getum til að verja okkur
Þrátt fyrir allt eru bæði Tómas og Daði tiltölulega rólegir yfir stöðu Íslands. Daði bendir á að aldrei þessu vant séu áhrifin á íslensk ríkisskuldabréf lítil. „Við sjáum það yfirleitt á Íslandi að þegar það hafa verið að koma merki um kreppu eða eitthvað slíkt þá hækkar álagið hraðar á okkur en alla aðra. Það hefur ekki verið að gerast núna. Raunar er það alveg öfugt, að álagið á Ísland hefur verið að lækka hlutfallslega ef tekið er tillit til þess hvað allir aðrir hafa verið að hækka mikið.“
Daði vill meina að ástæðan sé sú að staða ríkisfjármálanna sé, þrátt fyrir að annað mætti ætla í opinberri umræðu, með ágætum. „Almennt mat erlendra aðila er að íslenska ríkið sé með þeim ábyrgari í heiminum.“
Seðlabankanum hefur oft verið legið á hálsi fyrir að hafa reist of háar girðingar, einkum er varðar kröfur sem lagðar eru á íslensk fjármálafyrirtæki. En allt hafi það verið gert til að undirbúa okkur fyrir óvissutíma. „Við höfum gert allt sem við getum – við, bankarnir og þessir stærri aðilar í samfélaginu – til þess að undirbúa okkur fyrir svona umrót.“