Ríkisútvarpið hefur eftir sínum heimildum að maður á fimmtugsaldri hafi verið með hníf í versluninni. Hann hafi ekki hlýtt skipunum um að leggja hnífinn frá sér og ekki brugðist heldur við piparúða.
Þá hafi lögregla beitt hann rafbyssu og þá tekist að yfirbuga manninn og fara með hann í lögreglubíl.