Áhættumat íslenska ríkisins verður endurskoðað í ljósi nýrra frétta frá Danmörku um að danski herinn ætli að auka viðbúnað vegna ógna frá Rússum. Danir telja aukna hættu á fjölþáttaárásum Rússa á NATO-ríki á næstu mánuðum.
Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins telur ógnina alvarlega að sögn Jónasar Allanssonar, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
„Við metum ógnina alvarlega. Það hefur verið fylgst mjög vel með þessu,“ segir Jónas.
Jónas segir það verða gert í þéttu samstarfi við bandalagsríki sem hafi fjallað um þessa ógn, þar á meðal dönsk, þýsk og pólsk yfirvöld, sem hafi upplifað atvik tengd þessu.
Ein árás er þegar til rannsóknar í Danmörku, þegar neyðarblysi var skotið frá rússneskri freigátu að eftirlitsflugvél frá danska hernum. Þá hefur fjöldi tilvika komið upp sem tengjast grunsamlegum drónum víða í Evrópu – það alvarlegasta í byrjun ágúst á flugvellinum í Leipzig, sem Þjóðverjar segja Rússa ábyrga fyrir.
Guðmundur segir áhættumat ríkisins sífellt í endurskoðun og þá sé það metið í samhengi við heimsástandið hverju sinni.
„Utanríkisráðherra hefur ítrekað bent á þessa ógn og við höfum fordæmt hana. Við höfum fordæmt þessar aðgerðir Rússa. Rússar eru að beita þessum aðgerðum af því að þeir eru í vandræðum í Úkraínu. Þeir eru þannig að reyna að rjúfa samstöðu bandalagsríkja. Með því að beita þessum aðferðum beita þeir ýmsum brögðum.“