Trommuleikarinn Egill Örn Rafnsson hefur átt feril sem inniheldur allt frá Grafík og Sign, tónleika fyrir tugþúsundir, fimm ár í London, tónleikaferðalög erlendis, Dimmu, Buttercup, Ber og lagasmíðar fyrir Pál Óskar.Í nýjum þætti af hlaðvarpinu Popparasögur segir hann meðal annars frá því þegar hann kom til greina að verða trommuleikari Queens of the Stone Age eða Placebo, tónleikum sem hann spilaði með 40 stiga hita og óráði og því þegar forsíðufrétt varð til þess að hann hætti að vinna á leikskóla.
Egill Örn spilaði með 40 stiga hita fyrir Dennis Rodman – „Kláraði síðasta lagið, ældi á sviðið og bara borinn úti í bíl“