Dómsmálaráðherra kynnti í dag áform um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Hún stefnir á að leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi í nóvember, en drög að frumvarpinu verða kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í október.
Núna eru embættin níu og skiptast í höfuðborgarsvæðið, Suðurnes, Suðurland, Vestmannaeyjar, Austurland, Norðurland eystra og Norðurland vestra, Vestfirði og Vesturland. Þegar embættunum verður fækkað verða höfuðborgarsvæðið og Suðurnes að einu embætti, Austurland, Suðurland og Vestmannaeyjar sameinast í eitt stórt embætti og Norðurland, Vesturland og Vestfirðir mynda það þriðja.
Lögreglustöðvum verður ekki fækkað en aðalstöðvar verða einungis þrjár í stað níu. Fjöldi lögreglumanna helst sá sami en lögreglustjórum verður fækkað í þrjá.
Markmiðið að styrkja lögregluna
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir takmarkið að styrkja lögregluembættin og efla. „Ávinningur felst í því að lögregla getur í krafti stærðar sinnar og bættu skipulagi einfaldlega náð betur utan um þau fjölbreyttu verkefni sem við henni blasa,“ segir Þorbjörg Sigríður. Verkefni lögreglunnar í landinu hafi breyst í breyttum heimi. „Við erum að fást t.d. við glæpahópa sem vinna þvert á landamæri.“
Hún segir að markmiðið sé ekki fjárhagsleg hagræðing. „Stóri tilgangurinn er ekki fjárhagsleg hagræðing. Það sést t.d. í fjárlagafrumvarpinu að fjárheimildir til lögreglu eru óbreyttar.“
Óvíst hverjir verða lögreglustjórar og hvar
Ekki liggur fyrir hverjir verða lögreglustjórar yfir nýju embættunum. Starfandi lögreglustjórar hafa forgang umfram aðra ef þeir sækjast eftir þeim stöðum. Verði þeir ekki skipaðir lögreglustjórar verður þeim boðin staða aðstoðarlögreglustjóra. Ef núverandi lögreglustjóri fer ekki í slíka stöðu, hvort sem hann kýs að gera það ekki eða fær ekki skipun, fær hann biðlaun í sex til tólf mánuði, sem ræðst af starfsaldri.
Þá er ekki ljóst hvar lögreglustjórarnir verða staðsettir, þ.e. hvar aðalstöðvar lögregluembættanna verða.
Ákveðin verkefni ríkislögreglustjóra munu færast yfir til lögreglunnar, svo sem fylgdardeild sem sér um að fylgja erlendum ríkisborgurum úr landi, til dæmis eftir að þeim hefur verið synjað um hæli.