Leikarinn, grínistinn og tónlistarmaðurinn Villi Neto tekur skýra afstöðu gegn notkun gervigreindar í listsköpun í nýjum þætti Gervigreindarklúbbsins. Hann óttast að með aukinni notkun tækninnar glatist bæði mennskan og kunnáttan sem liggja að baki raunverulegri sköpun.„Fyrir mig að vera í meðvitaðri uppreisn er bara þannig að ég vil ekki nota hana. Punktur,“ segir Villi í samtali við Stefán Atla Rúnarsson, stjórnanda Gervigreindarklúbbsins.
Villi Neto í uppreisn gegn gervigreind: „Ég vil ekki nota hana. Punktur.“