Prestur var drepinn og fjórir eru særðir eftir hnífárás í Benediktínaklaustri í Jarosław, suðaustur Póllandi í morgun.
Pólska ríkisútvarpið greinir frá því að úkraínskur maður á fertugsaldri hafi verið handtekinn. Tveir hinna særðu eru prestar og auk þeirra særðust kona og maður í árásinni. Tveir eru alvarlega slasaðir eftir árásina.
Nunna sem varð vitni að árásinni sagði að enginn hefði þekkt til árásarmannsins. Rannsókn lögreglu beinist meðal annars að ástæðu árásarinnar, en rannsakendur telja að maðurinn hafi keyrt frá Þýskalandi og að landamærum Úkraínu en hafi ekki farið yfir þau þar sem þau voru lokuð.
Forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, segir að árásarmanninum verði refsað af hörku í samræmi við pólsk lög. Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, fordæmdi árásina og sagði hana hryllilegan glæp.