Þetta segir Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún hafi þess í stað verið á viðburði til stuðnings Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) sem fram fór á sama tíma.
Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum var í sæti Íslands í sal allsherjarþingsins og sat þar áfram, ásamt fulltrúum annarra norrænna ríkja, að sögn Ingileifar.
Hún nefnir umræddan fulltrúa ekki á nafn í svari sínu til fréttastofu en Einar Gunnarsson, sendiherra í Genf, er fastafulltrúi Íslands gagnvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, samkvæmt vef utanríkisráðuneytisins. Sóley Ásgeirsdóttir, ráðunautur í fastanefnd Íslands í Genf, hefur einnig setið fundi mannréttindaráðsins fyrir Ísland.
Ráðherravika allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna stendur nú yfir og eru bæði utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í New York vegna þessa.
Aðstoðarmaður ráðherra segir að Þorgerður hafi jafnframt tekið þátt í ráðherraviðburði um tveggja ríkja lausnina fyrr um daginn en henni er ætlað að koma á friði í samskiptum Ísraels og Palestínu.
Benjamín Netanjahú lét sér fátt um finnast þegar fulltrúar ríkja yfirgáfu salinn og kallaði þá siðferðislega hugleysingja.
Ásakanir um þjóðarmorð „stærsta lygi aldarinnar“
Netanjahú sagði ásakanir um þjóðarmorð Ísraelsmanna á Gasa vera „stærstu lygi aldarinnar“ í ögrandi ræðu frammi fyrir hálftómum sal allsherjarþingsins.
Þegar hann steig upp í ræðustól brugðust sumir við með fagnaðarlátum á meðan aðrir púuðu og gengu út, að sögn AP-fréttaveitunnar. Meirihluti sæta hafi verið auð á meðan hann flutti ræðu sína.
„Ef það eru einhverjir aðrir siðferðislegir hugleysingjar sem hafa ekki enn yfirgefið salinn, vinsamlegast gerið það núna,“ sagði Netanjahú.
Hann hækkaði síðan róminn og sagði árásir Ísraels á Íran „hafa verið ein auðveldasta ákvörðun sem ég hef nokkurn tíma þurft að taka.“
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, neyddist til að ávarpa Sameinuðu þjóðirnar með myndskeiði eftir að Bandaríkin synjuðu honum aftur um vegabréfsáritun og komu þannig í veg fyrir að hann gæti sótt allsherjarþingið.
Fréttin hefur verið uppfærð.