Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld.
Framferði Ísraels á Gaza hefur verið mótmælt í New York í dag. Því var líka mótmælt í þingsalnum þegar fjöldi fulltrúa gekk út á sömu stundu og Netanjahú gekk í ræðustól.
„Ef fleiri siðferðislegar bleyður eiga eftir að fara úr salnum bið ég ykkur að fara núna.“
Netanjahú nýtti ræðuna til að gagnrýna andstæðinga sína – og bandamenn. Hann var harðorður í garð Íran, sem hann kallaði morðóða einræðisstjórn, en setti einnig út á bandamennina Bretland og Frakkland sem hafa verið sígagnrýnni á Ísrael.
Netanjahú vék líka máli sínu að Zohran Mamdani, borgarstjóra New York, og sakaði hann um gyðingaandúð.
Mamadani hefur kallað eftir því að handtökuskipun Alþjóðlega sakamáladómstólsins á hendur Netanjahú verði framfylgt. Borgaryfirvöld í New York hafa aftur á móti ekki heimild til þess að framfylgja henni að hans sögn.
Mótmælendur handteknir
Mikil mótmæli voru við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna vegna veru Netanjahús á þinginu. Lögregla slóst í leikinn og handtók mótmælendur. Hollywood-stjörnurnar Susan Sarandon, sem er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í Thelma & Louise, og Hannah Einbinder úr Hacks voru á meðal þeirra 100 mótmælenda sem lögregla handtók.