Nú styttist óðum í áttunda október en þá rennur út frestur til að segja upp nú núverandi kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi segir þá stöðu sem uppi er í íslensku samfélagi í dag kalla á samtakamátt allra, bæði stjórnvalda, atvinnurekenda og þeirra sem fara fyrir launþegum.
Festi ákváðu í dag að frysta verð á um 650 vöruflokkum í Krónunni til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heimili landsins. Ásta segir aðgerðirnar til þess gerðar að auka fyrirsjáanleika viðskiptavina og fólksins í landinu og létta á kostnaðarþrýstingi á heimilin.
„En þetta er svona hin almenna dagvara sem flestir versla og þetta er allt frá kjúklingabringum og matvælum yfir í klósettpappír og hreinsivörur.“
Ákall sent til fyrirtækja og sveitarfélaga
Halla Gunnarsdóttir formaður VR biðlaði til stórra fyrirtækja, sem talin eru hafa verðmótandi áhrif í íslensku samfélagi, um að láta til sín taka í baráttunni hafi þau kost á. Sambærileg bréf voru einnig send á sveitarfélög.
„Þar erum við að spyrja: Hvaða skuldbindingar eru þið tilbúin að undirgangast inn í þennan vetur þar sem er verið að biðja okkur um að láta kjarasamninga halda þrátt fyrir forsendubrest?“
Í bréfinu er í raun beðið um skuldbindingar gagnvart loforðum sem gefin voru árið 2024. Halla segir ekki nægilega marga hafa tekið það til sín þegar samtök og ríki tóku sig saman um að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum og gera gangskör í húsnæðismálum.
„Það kom í ljós að sveitarfélögin töldu sig ekki bundin því sem sambandið segir, hækkuðu leikskólagjöld, hitaveitugjöld, langt, langt, langt umfram það sem rætt var um og fyrirtækin töldu sig ekki bundin þessu heldur.“
Merkjasending fyrirtækja almennt jákvæð
Halla segir verðbólgutölur sýna það svart á hvítu að verðhækkanir hafi orðið alls staðar, hún tekur þó undir með Ástu að sé litið til matvara hafi innlend matvara meiri áhrif.
„En það breytir því ekki að 4,4% hækkun á matvöru á einu ári er alveg talsverð.“
Merkjasendingu Festi segir Halla jákvæða og fleiri fyrirtæki hafi sömuleiðis tekið vel í kallið, þar á meðal Ölgerðin og SS.
„Að fá fram aðila sem segja: Við viljum leggjast á árarnar, þetta er það sem við teljum okkur geta gert. Svo getur fólk haft skoðanir á því hvort það ætti að geta gert meira eða hefði átt að gera þetta fyrr, en í öllu falli þá skiptir þetta máli.“
Nánar var rætt við þær Ástu og Höllu í Kastljósi kvöldsins sem nálgast má í spilaranum hér fyrir neðan.