Leó páfi heldur til Parísar í dag í fyrstu opinberu heimsókn páfa til Frakklands í 18 ár. Kirkjuklukkur hringja í sjö mínútur í kirkjum landsins þegar Leó páfi lendir í París klukkan átta að íslenskum tíma.
Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, og eiginkona hans Brigitte taka á móti honum á flugvellinum og þaðan heldur hann í forsetahöllina. Síðdegis verður hann með ræðu um mikilvægi þess að koma reglum yfir gervigreind í höfuðstöðvum Mennta-, vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.
Páfinn heimsækir einnig Kirkju vorrar frúar, Notre Dame-dómkirkjuna, og verður fyrsti páfinn til að heimsækja kirkjuna eftir brunann 2019. Þá verður hann með bænastund fyrir unga kaþólikka á íþróttaleikvangi og aðra fjöldamessu í París.
Ræðir við þolendur kynferðisofbeldis og mælir fyrir friði í Evrópu
Leó heimsækir einnig bæinn Lourdes í suðvestur Frakklandi þar sem hann ræðir í einrúmi við sjö þolendur kynferðislegrar misnotkunar kaþólskra presta.
Rannsókn árið 2021 leiddi í ljós að prestar eða aðrir innan kirkjunnar hefðu misnotað um 330.000 börn yfir 70 ára tímabil. Á undanförnum árum hafa komið fram enn fleiri ásakanir á hendur kaþólsks prests og starfsmanna heimavistarskóla nærri Lourdes.
Páfinn mun einnig mæla fyrir friði í Evrópu og það gerir hann í borginni Metz í norðausturhluta Frakklands nærri landamærum við Þýskaland. Þjóðarleiðtogum og ríkisstjórnum Evrópusambandslanda hefur verið boðið á þennan síðasta viðburð páfans í Frakklandi.
Fáir sækja kirkju reglulega en æ fleiri láta skíra sig á fullorðinsárum
Talið er að allt að milljón manns sæki viðburði og staði sem Leó páfi heimsækir í Frakklandi. Könnun sem gerð var á síðasta ári leiddi í ljós að um fimm prósent af 69 milljónum íbúa Frakklands fara reglulega í kaþólska kirkju.
Veraldarhyggja er útbreidd, réttur til þungunarrofs er staðfestur í stjórnarskrá og hægt er að fá heimild fyrir dánaraðstoð fyrir vissa einstaklinga.
Þrátt fyrir að dregið hafi úr skírn ungbarna á síðustu árum hefur þeim fjölgað sem staðfesta trú sína og láta skíra sig á fullorðinsárum.