Gul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum til klukkan 15:00 síðdegis í dag.
Veðurstofan varar við norðaustan 15-23 m/s og vindhviðum staðbundið yfir 30 m/s. Einnig má búast við rigningu sem breytist yfir í snjókomu á fjallvegum eftir hádegi. Varasamt ferðaveður.
Þá er einnig varað við mikilli úrkomu á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra frá klukkan 03:00 í nótt og til klukkan 23:30 í kvöld.
Talsverð eða mikil rigning, einkum á Ströndum. Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig er aukið álag á fráveitukerfi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.