Mikinn óþef hefur lagt yfir Boyle Heights-hverfið í Los Angeles í Bandaríkjunum undanfarna daga. Óþefinn má rekja til matvæla sem geymd voru í vöruhúsi sem brann til kaldra kola um miðjan júní. Þrjátíu og níu þúsund tonn matvæla voru geymd í húsinu, þar á meðal nautakjöt, svínakjöt, kjúklingur og sjávarfang. Hreinsunarstarf eftir brunann hefur tekið lengri tíma en áætlað var.
Kona sem vinnur í hverfinu segir lyktina svo vonda að mann langi til að kasta upp og líkir henni við óþefinn af rotnandi líki. Par sem rekur kaffihús nálægt vöruhúsinu segir viðskipti hafa hríðfallið, ekki síst vegna ágangs flugna.
Rannsókn á vegum borgarinnar hefur sýnt að rotnandi matarleifarnar verði til þess að flugum sem sýkt geti opin sár fjölgi. Þá hafa íbúar séð stórar rottur í hverfinu og segja að gildrur sem komið hefur verið fyrir meðfram götum dugi ekki til að fanga þær.
Borgaryfirvöld hafa verið gagnrýnin á viðbrögð Lineage, fyrirtækisins sem rak vöruhúsið. Lineage sagði fyrir viku að hreinsunarstarfi hefði þá verið 80% lokið.
Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles, segist í samtali við breska ríkisútvarpið hafa verið í virku samtali við íbúa hverfisins. Hún hefur heitið því að auka fjárveitingar til að bregðast við óþefnum, til dæmis með færanlegum heilsugæslustöðvum og lofthreinsitækjum. Hún hefur gefið rekstraraðilum frest til 13. ágúst til að klára hreinsunarstarfið.